Kveðja til íbúa Húnabyggðar

Stjórn og starfsfólk SSNV eru harmi slegin vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað á Blöndósi í morgun. Hugur okkar er hjá íbúum Húnabyggðar og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna þessa harmleiks. Við sendum hugheilar og hlýjar kveðjur til ykkar allra og biðjum þess að allar góðar vættir veiti styrk til að takast á við þessa miklu raun.