Í nýjasta hjaðvarpsþætti Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ráðhúsinu, er umfjöllunarefnið Hvernig gengur sveitarfélögum í úrgangsmálum?
Í þættinum ræðir Finnur Ricart Andrason, sérfæðingur í umhverfismálum hjá Sambandinu, við Frey Eyjólfsson, verkefnastjóra fræðslu og kynninga hjá Sorpu, um stöðu úrgangsmála hjá sveitarfélögum landsins.
Fara þeir yfir víðan völl og ræða m.a. þær breytingar sem hafa orðið á undanförnum árum á flokkunarkerfi landsins í kjölfar þess að Hringrásarlögin tóku gildi um áramótin 2023, hvaða árangur hefur náðst og hvaða áskorunum sveitarfélögin standa nú frammi fyrir í því að stuðla að hringrásarhagkerfi. Þá gefur Freyr góð ráð tengd málaflokknum sem vert er að hlusta á.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér, hann er 30 mínútur að lengd.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550