Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Leitin hefur verið í fullum gangi og bárust 22 umsóknir að þessu sinni. Úr þessum 22 glæsilegu verkefnum hafa verið valin 8 verkefni sem verða kynnt á lokaviðburði Norðansprotans, þar sem dómnefnd mun velja Norðansprotann 2025. Lokaviðburðurinn er haldinn í Drift EA á Akureyri núna á föstudaginn kl.17:00 og er opinn fyrir öll – skráning fer fram hér.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá gróskuna í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlandi og frábært að fá 22 flottar skráningar í Norðansprotann. Við samstarfsaðilarnir vinnum markvisst að því að efla vistkerfi nýsköpunar á Norðurlandi því við trúum því að nýsköpun, hugvit og frumkvöðlastarf séu forsenda verðmætasköpunar, atvinnumöguleika og öflugs samfélags. Það á að vera alveg dásamlegt að búa hér og það er það svo sannarlega, en við verðum að taka inn í myndina áskoranirnar sem við búum við – hvernig getum við tekið málin í eigin hendur og skapað það samfélag sem við viljum sjá fyrir okkur og afkomendur okkar? Við viljum efla kraftinn í fólkinu okkar hér á Norðurlandi – það eiga allir að hafa trú á eigin getu og verkfæri til að skapa og koma góðum hugmyndum af stað.“ segir Svava Björk Ólafsdóttir, verkefnastjóri frumkvöðla og nýsköpunar við Háskólann á Akureyri.
Þau teymi sem munu fá tækifæri til að kynna verkefni sín og heilla dómnefndina eru:
Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu. Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA, Eims og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Upphaf fjárfestingasjóði, sem mun veita verðlaunafé til Norðansprotans.
„Það er okkur ánægja að styðja við frumkvöðla sem eru að taka sín fyrstu skref í gegnum Norðansprotann“ segir Sverrir Gestsson framkvæmdastjóri Upphafs fjárfestingasjóðs, en sjóðurinn sem er í eigu KEA og fjárfestir í nýsköpunarverkefnum á Norðurlandi eystra.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550