Húnvetningurinn Bára Grímsdóttir er tónskáld mánaðarins

Bára Grímsdóttir. Mynd af vef Tónlistarmiðstöðvar.
Bára Grímsdóttir. Mynd af vef Tónlistarmiðstöðvar.

Bára Grímsdóttir er tónskáld júlímánaðar hjá Tónlistarmiðstöð Íslands.

Það er ánægjulegt að vekja athygli á þessu þar sem Bára á sterkar rætur á Norðurlandi vestra.

Bára, sem fæddist árið 1960, ólst upp við íslenska þjóðlagatónlist á ættarjörðinni Grímstungu í Vatnsdal. Þar heyrði hún foreldra sína og afa og ömmur syngja gömul þjóðlög, rímur og kvæðalög – arfleifð sem hefur fylgt henni alla tíð og mótað bæði tónsköpun hennar og starf við varðveislu íslenskrar tónlistarhefðar.

Bára er í dag eitt af fremstu tónskáldum Íslands og hefur átt stóran þátt í að miðla íslenskri þjóðlagaarfleifð, bæði hér heima og erlendis. Kórtónlist hennar hefur notið mikilla vinsælda og verk hennar hafa verið flutt af kórum víða um heim. Þá hefur hún um árabil komið fram með eiginmanni sínum, enska þjóðlagasöngvaranum Chris Foster, meðal annars undir nafninu FUNI. Bára var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2019 fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi.

Á vef Tónlistarmiðstöðvar Íslands má lesa nánar um Báru og nálgast 42 verka hennar.