Hjónin Elín S Sigurðardóttir og Jóhannes Torfason frá bænum Torfalæk í Húnabyggð hlutu viðurkenninguna Landstólpinn 2023

Landstólpinn 2023
Landstólpinn 2023

Hjónin Elín S Sigurðardóttir og Jóhannes Torfason frá bænum Torfalæk í Húnabyggð þóttu skara framúr og hlutu viðurkenninguna Landstólpinn 2023 við mikinn fögnuð á ársfundi Byggðarstofnunnar sem haldin var á Húsavík sl föstudag.

Landstólpinn er samfélagsviðurkenning Byggðarstofnunnar en viðurkenningin eru hvatningarverðlaun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðarmálum. Þetta snýr m.a. að nýsköpun, byggðar- og atvinnuþróun, sjálfbærni og/eða menningarstarfsemi sem styrkir samfélög á landsbyggðinni og stuðlar að framgangi málefna landsbyggðanna bæði í heild sinni eða innan tiltekinna byggðarlaga. Byggðastofnun óskaði eftir tilnefningum frá öllu landinu í janúar 2023 og fóru sterkustu tilnefningarnar fyrir dómnefnd sem tók endanlega ákvörðun.

Viðurkenningunni fylgdi listmunur hannaður af íslenskum listamanni og í ár fylgdi í fyrsta sinn verðlaunafé viðurkenningunni að upphæð kr. 1.000.000. Hjónin sögðu við móttöku viðurkenningarinnar að þau ætluðu að gefa orgelsjóði Blönduóskirkju allt verðlaunaféið.

Hjónin hafa svo sannarlega gert mikið fyrir okkar samfélag á Norðurlandi vestra. Starf Elínar í uppbyggingu Heimilisiðnarsafnsins er sannkallað frumkvöðlastarf þar sem menningarsögulegur arfur svæðisins er í hávegum og safnið hefur markað sér traustan sess í safnaflóru íslenskra safna enda hefur Elín staðið þar í stafni eins og klettur. Jóhannes hefur m.a. gegnt hlutverki framkvæmdastjóra Ámundakinnar ehf. sem hefur unnið ötullega að uppbyggingu atvinnumála á Norðurlandi vestra en segja má að félagið sé byggðafestufélag sem hefur tryggt á þriðja tug fyrirtækja húsnæði ásamt því að vera beinn þátttakandi í fyrirtækjum á svæðinu.

Ljóst er að samfélagið okkar á þeim hjónum margt að þakka og við óskum Elínu og Jóhannesi á Torfalæk innlega til hamingju og færum þeim þakkir fyrir allt þeirra góða starf í þágu landshlutans.