Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu

Hefur þitt fyrirtæki áhuga á að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og ráðast í samstarfsverkefni í þróunarlöndum? Með því að styðja við eflingu atvinnu- og viðskiptalífs í þessum löndum gefst um leið tækifæri til að efla samkeppnishæfni á framtíðarmörkuðum.

Næsti umsóknarfrestur er 3. maí 2022. Umsóknir skal senda á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is

Nánari leiðbeiningar í verklagsreglum sjóðsins

Fyrirtæki 

Fyrirtæki sem eru opinberlega skráð sem slík og eru ekki ríkisaðilar geta sótt til sjóðsins. Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að þverlægum markmiðum  þróunarsamvinnu Íslands um mannréttindi, sjálfbærni og jafnrétti kynjanna.  Fyrirtæki geta tekið höndum saman með félagasamtökum, háskólum og öðrum slíkum aðilum við framkvæmd verkefna.   

Samstarfslönd

Áherslan er annars vegar á lágtekju- og lágmillitekjuríki á lista þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (DAC/OECD) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar. Hins vegar er áherslan á  smáeyþróunarríki (SIDS) á sama lista . Verkefni þarf að vinna í samvinnu við traustan samstarfsaðila í þróunarlandi.
Sjá lista yfir gjaldgeng samstarfslönd.

Styrkfjárhæð

Styrkfjárhæð getur numið allt að 200.000 evrum yfir allt að þriggja ára tímabil og getur ekki orðið meira en helmingur af heildarkostnaði verkefnis. Því þarf fyrirtæki og samstarfsaðilar þess í þróunarlöndum að leggja fram sama eða hærra framlag en styrkfjárhæðin nemur svo sem í formi vinnu eða ráðgjafar.

Umsókn 

Senda skal umsókn til utanríkisráðuneytisins á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is. Fylla þarf út  umsóknareyðublöð sem er að finna hér neðar, verkefnaskjal og verk- og kostnaðaráætlun eins og fram kemur í verklagsreglum. Velkomið er að senda fyrirspurnir á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is.

Afgreiðsla

Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti matshóps þriggja óháðra sérfræðinga á sviði fyrirtækjareksturs og þróunarsamvinnu. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 3. maí 2022. Jafnframt verður auglýst í ágúst með frest til 3. október.

 

Nánari upplýsingar má finna hér.