Gerðu gott mót á Mannamótum 2022

Nóg að snúast á Mannamótum
Nóg að snúast á Mannamótum

Mannamót Markaðsstofana fór fram í s.l. fimmtudag 24.3.  í Kórnum í Kópavogi. Þessi árlegi viðburður Markaðsstofana, sem ekki náðist að halda á síðast ári, er fyrir löngu orðinn fastur liður í samskiptum ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni og söluaðila á höfuðborgarsvæðinu, en einnig nýta aðilar s.s leiðsögumenn og fjölmiðlafólk sér þennan viðburð til að afla sér upplýsinga um það nýjasta sem í boði er. Það var virkilega ánægjulegt að sjá 20 fyrirtæki af Norðurlandi vestra taka þátt, en það er svipaður fjöldi og hefur verið á fyrri Mannamótum. Okkar fólk lét vel af viðtökunum og horfir björtum augum fram á veg m.t.t. bókunarstöðu.  Og auðvitað voru allir sammála um að það væri mikill léttir að geta ftur farið að hitta fólk í raunheimum.