Dagana 12.–15. september 2026 mun ungt fólk víðs vegar að af Norðurlöndum koma saman í Færeyjum og taka þátt í spennandi dagskrá sem felst í að skoða sameiginlegar áskoranir og tækifæri í tengslum við sjálfbæra þróun, nýsköpun og framtíð samfélaga. Dagskráin inniheldur hvetjandi erindi, gagnvirkar vinnustofur og fjölmörg tækifæri til að mynda ný tengsl við annað ungt fólk sem vill stuðla að betri framtíð fyrir norræn samfélög. Þátttakendur fá einnig að upplifa einstaka náttúru, menningu og gestrisni Færeyja.

Generation Nordic leiðir saman virkt og samfélagslega þenkjandi ungt fólk til að deila hugmyndum, ræða sameiginlegar áskoranir og skoða nýjar leiðir til að móta framtíð Norðurlandanna. Saman leggjum við áherslu á velferð, sjálfbæra þróun og samstarf þvert á landamæri.
Þátttaka í Generation Nordic 2026 er frábært tækifæri til að efla hæfni þína, stækka tengslanetið og taka þátt í mikilvægum svæðisbundnum málefnum.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og umsóknarfrestur er til 1. júní. Ef þú hefur áhuga, sendu inn rafræna umsókn.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Generation Nordic 2026
Helstu upplýsingar í mjög stuttu máli:
Hvenær: 12.–15. september 2026
Hvar: Færeyjar
Fyrir hverja: Ungt fólk á aldrinum 18–30 ára sem býr á Norðurlöndum
Kostnaður: Ókeypis – ferðakostnaður, gisting og máltíðir greiddar fyrir alla þátttakendur sem verða valdir
Umsóknarfrestur: til 1. júní 2026
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa beint samband við Hildi Hilbertsdóttur Durhuus, hildur@nora.fo eða hringja í síma +298 538145.
Einnig er hægt að fá upplýsingar um verkefnið hjá Hönnu Dóru Björnsdóttur hjá Byggðastofnun.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550