Í gær, 17. febrúar, stóðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands fyrir fundi í Félagsheimilinu á Blönduósi um hlutverk og mikilvægi félagsþjónustu í almannavarnaástandi.
Fundurinn er hluti af verkefninu Velferð og vá, sem leitt er af Guðnýju Björk Eydal prófessor, og snýr að hlutdeild félagsþjónustu sveitarfélaga í skipulagi almannavarna. Á fundinum komu saman fulltrúar félagsþjónustu, lögreglu og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til að ræða niðurstöður rannsóknar og miðla reynslu af viðbrögðum við samfélagslegum áföllum.
Sérstök áhersla var lögð á samspil almannavarna og félagsþjónustu, mikilvægi skýrra verkferla og öflugs samstarfs í þágu íbúa, ekki síst viðkvæmra hópa. Sambærilegir fundir hafa verið haldnir eða verða haldnir í öllum landshlutum og í lok fundaraðarinnar verða niðurstöður þeirra teknar saman í skýrslu með tillögum að úrbótum og næstu skrefum.
Þökkum góðan og upplýsandi fund.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550