Íbúar á Norðurlandi vestra geta svo sannarlega átt fjölbreytta og viðburðaríka daga á næstunni því framundan er fjöldi viðburða sem vert er að gefa gaum.
Víða verður sjómannadeginum fagnað; Skagstrendingar byrja dagskrána strax á morgun fimmtudag með golfmóti kl. 13 og lýkur dagskrárliðum þar ekki fyrr en seinni part sunnudags. Í boði eru fjölbreyttir dagskrárliðir bæði innan húss og utan. Hér má sjá glæsilega dagskrá hátíðarinnar Hetjur hafsins: Hetjur hafsins - dagskrá | Skagaströnd
Sjómannadeginum verður fagnað á Sauðárkróki með bryggjuskemmtun á laugardaginn. Hefst dagskrá þar kl. 12 með skemmtisiglingu. Þátttakendur fjölskylduhátíðarinnar á syðri bryggjunni við Sandeyri fá að njóta bæði matar og skemmtunar til kl. 15. Hér er nánari dagskrá: https://www.facebook.com/Sjavarsaela
Skagfirðingar geta haldið áfram að heiðra sjómenn því að á sunnudaginn verða hátíðarhöld á Hofsósi þar sem dagskrá hefst kl. 12:30 á helgistund við minnisvarða um látna sjómenn. Boðið verður upp á dagskrá á hafnarsvæðinu til kl. 15 og eftir það verður kaffisala í Höfðaborg. Hér er auglýsing hátíðarinnar: Sjómannadagurinn á Hofsósi
Vestur-Húnvetningar fagna sjómannadeginum sömuleiðis á sunnudaginn. Sjómannadagsmessa verður haldin á Bangsatúni á Hvammstanga kl. 13 og verður Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra svo með kaffihlaðborð í VSP húsinu. Félagið er einnig með sýningu á handverki sem félagar unnu innan við tvítugt. Sýningin ber heitið Bernskuverkin býsna snjöll. Þá verður einnig hægt að komast í skemmtisiglingu úr á Miðfjörð kl. 14 í boði útgerðar Hörpu HU 4. Hér má sjá upplýsingar um dagskrána: Sjómannadagurinn 2025 | Húnaþing vestra
Í Húnabyggð verður annars konar fögnuður, Prjónagleði, en hún hefst á morgun, fimmtudag með opnun listsýninga, söguleiðsögn frá Vatnsdalshólum og samprjóni víða um Blönduós. Frá föstudegin til sunnudags verður boðið uppá fjölbreytt námskeið og glæsilegt garntorg verður opnað í Íþróttamiðstöðinni frá kl. 16, þar sem finna má allt sem mögulega höfðað getur til prjónafólks. Á Prjónagleðinni verða helstu söluaðilar landsins á þessu sviði svo áhugafólk um hannyrðir er hvatt til að gera sér ferð á Blönduós. Á heimasíðu Prjónagleðinnar má finna allar upplýsingar: https://prjonagledi.is
SSNV hvetur íbúa til að mæta á þessa glæsilegu og áhugaverðu viðburði og sýna þannig skipuleggjendum þeirra stuðning. Þannig búum við til samhent samfélög, rík af menningu og samkennd.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550