19. maí 2025 tók Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs á Norðurlandi vestra hjá SSNV þátt í Sjónaukanum, sem er árleg ráðstefna Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Þema ársins var „Farsæld í íslensku samfélagi“ og voru svæðisbundin farsældarráð á meðal þess sem kynnt var í opnum og fróðlegum erindum.
Sara Björk, verkefnastjóri, var með kynningu ásamt öðrum verkefnastjórum; Nínu Hrönn Gunnarsdóttur hjá Austurbrú, Ernu Leu Bergsteinsdóttur hjá Vestfjarðastofu og Þorleifi Kr. Níelssyni hjá SSNE. Í kynningunni var farið yfir tækifæri og áskoranir svæðisbundinna farsældarráða og hvernig þau tengjast viðaukasamningi við Sóknaráætlun landshlutanna. Þá var fjallað sérstaklega um 5. grein farsældarlaganna, sem kveður á um stofnun og hlutverk þessara ráða.
Einnig kom fram að óvissa ríkir enn um nákvæma skipan farsældarráðanna í hverjum landshluta fyrir sig, þar sem bæði stærð og áskoranir svæða eru mjög mismunandi. Það var þó sameiginleg niðurstaða að mikilvægt væri að tryggja að ráðin endurspegli sérstöðu hvers svæðis og stuðli að heildstæðri nálgun í þágu barna og fjölskyldna.
Áhersla var lögð á að farsæld barna sé ekki einungis velferðarmál, heldur byggðamál og mikilvægt að líta á snemmtæka íhlutun sem fjárfestingu – ekki kostnað. Þegar til lengri tíma er litið hagnast sveitarfélög á því að styðja við börn og fjölskyldur snemma, þar sem börnin eru framtíðar íbúar, starfsfólk, foreldrar og grunnstoðir samfélagsins.
„Sjónaukinn er afar góður vettvangur fyrir okkur til að kynna það sem við erum að gera. Erindi okkar skapar vonandi þarfar umræður og frekari vitundarvakningu. Farsæld barna er grunnurinn að farsælu samfélagi, þar sem þau eru framtíðin. Að byggja upp betri grunn fyrir börnin okkar leiðir til betri framtíðar,“ sagði Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs á Norðurlandi vestra hjá SSNV.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550