SSNV boðar til fundar ásamt Innviðaráðuneytinu og Byggðastofnun þar sem kynnt verða fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun, með sérstaka áherslu á drög að aðgerðaáætlun hennar. Fulltrúar ráðuneytisins og Byggðastofnunar munu kynna fyrirliggjandi drög og hvetja til skoðanaskipta um þau. Umræður og ábendingar sem fram koma á fundinum verða nýttar við áframhaldandi vinnu og munu m.a. liggja til grundvallar efni í hvítbók sem sett verður í samráðsgátt stjórnvalda í lok maí.
Hér er hægt að hafa rafrænt samráð um drögin á vef Byggðastofnunar og eru fundargestir hvattir til að kynna sér efnið vel fyrir fundinn.
Fundurinn verður haldinn á Teams þriðjudaginn 14. apríl kl. 10.00 og er öllum opinn. Nauðsynlegt er þó að skrá sig til að fá sendan hlekk. Skráning hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550