Breytingar á lögum um póstþjónustu

Tekið hefur verið saman minnisblað um aðdraganda, áhrif og vinnulag við breytingu á lögum um póstþjónstu sem leiddu til breytingar á gjaldskrá Íslandspósts í mismunandi gjald milli fjögurra svæða í stað eins gjalds um land allt. Varð það til þess að pakkasendingar eru nú umtalsvert dýrari á landsbyggðinni. Kemur þessi hækkun mjög illa við íbúa og fyrirtæki í hinum dreifðari byggðum. Minnisblaðið er aðgengilegt hér.

Í þessu samhengi er einnig vert að benda á ákvörðun Byggðastofnunar, sem nú sér um eftirlit með póstþjónustu, þar sem áréttað er að allir notendur póstþjónustu eiga rétt á alþjónustu sem uppfyllir gæðakröfur og er á viðráðanlegu verði. Telur stofnunin að Íslandspóstur þurfi að skýra nánar ákveðin atriði sem lúta að svæðaskiptingu í gjaldskrá fyrirtækisins og hefur óskað eftir skýringum. Ákvörðun Byggðastofnunar er aðgengileg hér.