List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn.
List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytisins sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Starfandi listamenn svo og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 22. mars 2026.
Mat á umsóknum
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 29. maí 2026
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu List fyrir alla undir krækjunni Fréttir, https://listfyriralla.is/
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550