Auglýst eftir umsóknum í Matvælasjóð

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir í Matvælasjóð og er umsóknarfrestur til og með 26. apríl 2022. Þetta er í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Heildar úthlutunarfé sjóðsins í þetta skiptið er 593 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

Áhersla sjóðsins er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu og hliðarafurða um land allt. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. 

Sjóðurinn hefur fjóra flokka: 

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni.
  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurðstyrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
  • Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri.

 Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér heimasíðu sjóðsins, www.matvælasjóður.is en þar má finna handbók Matvælasjóðs, upplýsingar um umsóknir og allar nánari upplýsingar um sjóðinn.

Við hvetjum umsækjendur til að hefja vinnu við umsókn í tíma. Umsóknarskrif taka oft lengri tíma en við ætlum. Góð umsókn eykur líkur á styrk!

SSNV býður upp á ráðgjöf og aðstoð vegna styrkumsóknaskrifa, m.a. í Matvælasjóð. Hafið samband við Sveinbjörgu, sveinbjorg@ssnv.is, eða Ólöfu, olof@ssnv.is.