QR og Canva námskeið

Vilt þú læra einfaldar stafrænar lausnir til að miðla upplýsingum? QR kóðar er snertilaus lausn til að miðla upplýsingum á einfaldan hátt. Canva er forrit á netinu sem gerir þér kleift að búa til faglegt markaðsefni.

Atvinnuráðgjafar SSNV, Sveinbjörg Rut og Kolfinna, verða með kynningarfund miðvikudaginn 17. nóvember kl. 11:45-12:15 þar sem þær kynna möguleika QR og Canva.

Vinnustofur verða svo haldnar þar sem þátttakendur geta mætt með snjallsíma eða fartölvu og lært betur á QR og Canva með því að búa til efni fyrir sína starfsemi. Vinnustofurnar er gjaldfrjálsar en nauðsynlegt er að skrá sig.