Vá ! Ekkert smá !

Hin mikla gróska, sem hefur verið í röðum smáframleiðenda undanfarin ár, ekki síst á landsbyggðinni, hefur þótt eftirtektarverð. Fjölmargir frumkvöðlar hafa byggt upp áhugaverða framleiðslu, sem að stærstum hluta tengist matvælum, en á heildina litið kennir ýmissa grasa. Eins og stundum vill verða hefur svona kraftmikil vegferð þurft að reka sig á ýmsa veggi í sínu rekstrarumhverfi og áskoranirnar af ýmsu tagi. En tækifærin eru líka mörg og fjölbreytileg. Með málþinginu langar okkur með góðum gestum að draga upp mynd af stöðunni, en ekki síður að horfa inn í framtíðina og hvaða forsendur séu nauðsynlegar fyrir áframhaldandi grósku.  

Dagskrá:
                                        

  • Setning
    Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV                                     
  • Smáframleiðendur – staðan í dag
     Oddný Anna Björnsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri SSFM                 
  • Af vettvangi  smáframleiðanda í kjöti          
    Skúli Þórðarson, eigandi Sláturhússins Refsstað á Vopnafirði                  
  • Af vettvangi smáframleiðanda í lífrænu grænmeti
    Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, grænmetisbóndi og formaður  Lífrænt Ísland          
  • Af vettvangi smáframleiðenda í áfengum drykkjum/bjór
    Finnur Ólafsson, stofnandi og eigandi Galdurs brugghúss á Hólmavík
  • Höfum hlutina í lagi 
    Egill Þorri Steingrímsson Sviðsstjóri samhæfingar – Matvælastofnun

    HÁDEGISHLÉ

  • Og auðvitað fræðsla
    Þórhildur María Jónsdóttir verkefnastjóri – Farskólinn á Norðurlandi vestra
  • Veitingageirinn og smáframleiðendur           
    Gunnar Karl Gíslason, veitingamaður á DILL og NORTH
  • Smásöluverslun og smáframleiðendur
    Gréta María Grétarsdóttir, fyrrum farmkvæmdastjóri Krónunnar og Prís            

  • PALLBORÐ með framsögufólki undir stjórn Hlédísar Sveinsdóttur málþingsstjóra
    – spurningar úr sal
                                                  
  • Samantekt: Sveinbjörg og Hlédís

Málþingslok

Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig HÉR  fyrir föstudaginn 6. mars n.k.