Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Opnað verður fyrir umsóknir mánudaginn 15. nóvember og er umsóknarfrestur til kl. 13 þriðjudaginn 7. desember. Auglýst er að nýju vegna formgalla við birtingu auglýsinga sem frá birtust 23. og 25. september sl. en umsóknir sem bárust skv. þeirri auglýsingu halda gildi sínu og ekki þörf á að senda þær aftur inn. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða um land allt og styðja með því við þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar stoðar í íslensku atvinnulífi. Það er jafnframt markmið sjóðsins að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.

  • Fyrir hverja?
    Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

  • Til hvers?
    Annars vegar vegna (Nýrrar) þjónustu/aðstöðu á ferðamannastað / ferðamannaleið. Hins vegar vegna úrbóta vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið.

Umsóknarfrestur er frá 15. nóvember til kl. 13 þriðjudaginn 7. desember 2021. Nánari upplýsingar er að finna hér

Atvinnuráðgjafar SSNV veita aðstoð og ráðgjöf við gerð umsókna: