Markaðssjóður sauðfjárafurða - umsóknarfrestur til 6. júní

Markaðsráð kindakjöts auglýsir eftir styrkumsóknum vegna sauðfjárafurða. Markaðsráð auglýsir eftir umsóknum, úthlutar styrkjum samkvæmt verklagsreglum tvisvar sinnum á ári, ákvarðar og úthlutar vegna umsókna sem berast. Umsóknarfrestur er til og með 6. júní. Verklagsreglur má sjá hér fyrir neðan og hér má finna umsóknareyðublaðið

MARKAÐSSJÓÐUR SAUÐFJÁRAFURÐA
Reglur um sjóðinn 2021
Markaðsráð kindakjöts annast vörslu fjármuna vegna verkefnis og auglýsir eftir styrkumsóknum. Markaðsráð ákvarðar og úthlutar vegna þeirra umsókna sem berast.

VERKLAGSREGLUR um styrki til stuðnings við nýsköpun, vöruþróun kynningar- og markaðsstarf

1. gr. Reglur þessar fjalla um ráðstöfun hluta framlags samkvæmt samkomulagi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis (ANR), Bændasamtaka Íslands (BÍ), Framleiðnisjóðs landbúnaðarins (FL) og Landssamtak sauðfjárbænda (LS) um átaksverkefni samkvæmt 10. gr. samnings um almenn starfsskilyrði sauðfjárræktar frá 19. febrúar 2016. Verja skal 10 m.kr. á ári af upphæð til átaksverkefnisins Aukið virði sauðfjárafurða til nýsköpunar, vöruþróunar, kynningar- og markaðsstarfs á árunum 2017-2021. Með viðauka við samkomulagið frá 1. febrúar 2021 er verkefnið fært undir Markaðsráð kindakjöts, en Framleiðnisjóður landbúnaðarins var lagður niður 31.desember 2020.

2. gr. Markaðsráð kindakjöts annast vörslu umræddra fjármuna, auglýsir eftir umsóknum og úthlutar styrkjum samkvæmt reglum þessum tvisvar sinnum á ári. Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum 1. apríl og 1. október ár hvert og úthlutar styrkjum eftir umsóknum og samkvæmt reglum þessum.

3. gr. Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök, rannsóknarstofnanir, háskólar eða fyrirtæki.
Umsókn skal fylgja eftirfarandi: a) Listi yfir þá sem eiga aðild að verkefninu. b) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis c) Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess. d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
e) Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar eða nýttar.

4. gr. Markaðsráð kindakjöts veitir umsagnir um allar þær umsóknir sem sjóðnum berast og ákvarðar um úthlutun. Markaðsráð kindakjöts skal leggja faglegt mat á umsóknir um styrki. Styrkhæf eru þau verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf. Meðmæli markaðsráðs er forsenda styrkveitingar.

5. gr. Áður en styrkur er greiddur skal umsækjandi staðfesta að fjármögnun verkefnisins í heild hafi verið tryggð.
Heimilt er að greiða samþykktan styrk í hluta eða heild á undirbúningsstigi, þegar verkefni er sannarlega hafið eða þegar því er lokið samkvæmt ákvörðun Markaðsráðs kindakjöts hverju sinni.

6. gr. Styrkþegi skal skila skýrslu um verkefnið til Markaðsráðs kindakjöts eigi síðar en 6 mánuðum eftir að því lýkur. Í skýrslunni skal lagt mat á framgang verkefnisins og hverju það hafi skilað.

7. gr. Styrkveitingar til verkefna þar sem ekki tekst að uppfylla skilyrði þessara reglna um skýrsluskil og lok verkefnis innan 12 mánaða frá því að Markaðsráð kindakjöts samþykkir fyrirheit um styrk, falla niður. Markaðsráði er heimilt, vegna sérstakra aðstæðna, að veita frest til ráðstöfunar framlaga á næsta ári eftir úthlutun, enda hafi borist formleg beiðni þess efnis frá styrkþega fyrir lok úthlutunarárs.
Markaðsráði kindakjöts er heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum styrk, að hluta til eða í heild sinni ásamt kostnaði við innheimtu, ef verkefni sem veittur hefur verið styrkur fyrir er ekki unnið í samræmi við áætlanir.

8. gr. Markaðsráð kindakjöts skal taka saman árlega yfirlit um veitta styrki samkvæmt reglum þessum og skal það sent til Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda, Landssamtaka sláturleyfishafa og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

 

Hægt er að hafa samband við ráðgjafa SSNV, Kolfinnu á kolfinna@ssnv.is eða í síma 863-6345 og Sveinbjörgu á sveinbjorg@ssnv.is eða í síma 866-5390, fyrir frekari ráðgjöf og aðstoð við umsóknargerð.