29.06.2026
Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði á árinu 2026.
Lesa meira
26.06.2026
Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir.
Lesa meira
23.06.2026
Á Íslandi hefur áhugi á utanvegahlaupum og hlaupaviðburðum farið vaxandi á undanförnum árum og hefur Norðurland vestra stokkið á vagninn þar sem haldnir verða þrír hlaupaviðburðir í sumar í landshlutanum. Tvö þeirra komu ný inn í fyrra og eiga það sameiginlegt að byggja á frumkvæði heimafólks og eru styrkt af sóknaráætlun; Vatnsnes trail run og Molduxi trail.
Öll hlaupin eru til þess gerð að efla hreyfingu og útivist sem og að draga fram einstaka náttúru landshlutans og samheldin samfélög.
Lesa meira
12.06.2026
Nú er hægt að nálgast umsóknarform fyrir barnamenningarhátíðina Skúnaskrall - Öll saman.
Öll áhugasöm um barnamenningu á Norðurlandi vestra eru hvött til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst.
Lesa meira
08.06.2026
Formlega hefur verið opnað fyrir umsóknir í nýsköpunarhraðalinn Startup Landið 2026. Hraðallinn er sérsniðinn að frumkvöðlum á landsbyggðinni og er kjörinn vettvangur fyrir íbúa á Norðurlandi vestra sem ganga með flotta viðskiptahugmynd í maganum og vilja láta til sín taka. Umsóknarfrestur er til og með 1. september næstkomandi.
Lesa meira
05.06.2026
Á 140. fundi stjórnar SSNV sem haldinn var 3. júní sl. var lagt fram erindi frá Sigurði Hólmari Kristjánssyni, settum lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, þar sem hann lýsir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðra breytinga dómsmálaráðherra/Alþingis á lögregluembættum.
Lesa meira
05.06.2026
Fundargerð 140. fundar stjórnar SSNV, 3. júní 2026
Lesa meira
02.06.2026
ReSource hefur gert samning við Norðurá bs. um umhverfisvöktun urðunarstaðarins í Stekkjarvík. Samningurinn felur í sér að ReSource annist umhverfisvöktun sem Stekkjarvík ber að standa skil á samkvæmt starfsleyfi.
Lesa meira