Ársþing

Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Þingið skal haldið að vori, fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Ársþing hverju sinni ákveður næsta þingstað og skulu þing haldin sem víðast á starfssvæðinu. 

Á ársþingi SSNV og aukaþingum eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið.