Verk Lausn hlýtur viðurkenningu sem Framúrskarandi verkefni 2025

Fyrirtækið Verk Lausn ehf. á Skagaströnd hefur hlotið viðurkenninguna Framúrskarandi verkefni fyrir árið 2025 fyrir uppbyggingu framleiðslu á nútímalegum einingahúsum.
Lesa meira

Vel heppnað ársþing að baki

Ársþing SSNV fór fram við góðar undirtektir þar sem málefni Norðurlands vestra voru í brennidepli. Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá, góð þátttaka þingmanna og viðurkenningar til framúrskarandi fyrirtækja settu sterkan svip á þingið.
Lesa meira

Tvö fyrirtæki hljóta Byggðagleraugun 2026

Handhafar Byggðagleraugnanna 2026 eru tvö fyrirtæki á Norðurlandi vestra, Borealis Data Center og FISK Seafood. Bæði fyrirtækin hafa sýnt, hvort með sínum hætti, hvernig atvinnulíf getur stutt við jákvæða byggðaþróun og eflt samfélög í landshlutanum.
Lesa meira

Endurskoðun byggðaáætlunar

SSNV boðar til fundar ásamt Innviðaráðuneytinu og Byggðastofnun þar sem kynnt verða fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun, með sérstaka áherslu á drög að aðgerðaáætlun hennar.
Lesa meira

Orkuskipti í landbúnaði - vefþing 9. apríl

Eimur og Orkidea í gegnum Evrópuverkefnin RECET og Value4Farm standa fyrir vefþingi um orkuskipti í landbúnaði þann 9. apríl næstkomandi, þar sem sjónum verður beint að stöðu og framtíð orkuskipta í einni af lykilgreinum íslensks samfélags og atvinnulífs. Vefþingið hefst kl. 13 og klárast kl. 15:15, hluti þess verður á ensku. Vefþingið er opið öllum áhugasömum og þátttaka er ókeypis.
Lesa meira

Leitin að Norðansprotanum í fullum gangi.

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands. Leitin er hafin og stendur til 22. apríl þegar Norðansprotinn 2026 verður valinn á lokaviðburði sem haldinn verður í Drift EA á Akureyri.
Lesa meira

Svanni styður við uppbyggingu fyrirtækja í eigu kvenna

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna býður konum sem reka fyrirtæki áhugavert tækifæri til eflingar. Sjóðurinn styður við fyrirtæki í meirihlutaeigu kvenna með lánatryggingum sem ætlað er að efla uppbyggingu, vöxt og atvinnusköpun. Umsóknarfrestur um lán er til og með 13. apríl.
Lesa meira

Samtal um skapandi greinar: Skapandi ferli tölvuleikja

Áhugasömum um skapandi greinar og nýsköpun er bent á viðburð á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina (RSSG), í samstarfi við CCP, sem fram fer miðvikudaginn 8. apríl kl. 10:15–11:45 í húsakynnum CCP í Grósku, Bjargargötu 1 í Reykjavík. Að þessu sinni verður sjónum beint að tölvuleikjagerð sem skapandi grein og þeim fjölbreyttu ferlum sem liggja að baki þróun leikja. Fjallað verður um hvernig skapandi vinna og tæknileg þekking fléttast saman í leikjahönnun, sem og um þau tækifæri og áskoranir sem fylgja starfi innan greinarinnar. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Lesa meira

Fundargerð 138. fundar stjórnar SSNV, 24. mars 2026

Fundargerð 138. fundar stjórnar SSNV, 24. mars 2026
Lesa meira

Sumarstarf í veiðihúsi

Veiðihús rétt við Blönduós óska eftir að ráða starfsfólk til starfa við almenna gisti- og veitingaþjónustu í sumar.
Lesa meira