Byggðagleraugu SSNV 2026

Stjórn SSNV kallar eftir tilnefningum til Byggðagleraugna SSNV fyrir árið 2026. Hvaða ráðuneyti, stofnun eða fyrirtæki þykir þér hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans?
Lesa meira

Opið er fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Opið er fyrir umsóknir í Matvælasjóð til og með 27. febrúar 2026.
Lesa meira

Svanni - lánatryggingarsjóður kvenna

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna veitir lán til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna og hefur það að markmiði að efla atvinnusköpun, uppbyggingu og vöxt smærri fyrirtækja. Sjóðurinn lánar meðal annars til vöruþróunar, markaðssetningar og kaupa á nauðsynlegum tækjakosti, án þess að krafist sé trygginga.
Lesa meira

Textílmiðstöðin nær 10 þúsund fylgjendum á Instagram og býður í kaffi

Lesa meira

Stjórn SSNV auglýsir eftir áhersluverkefnum

Stjórn SSNV auglýsir eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2026. Áhersluverkefni eru hluti af Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029 og eru skv. samningi um sóknaráætlanir: „verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna“. Til úthlutunar eru 35 milljónir króna.
Lesa meira

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknasjóð

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. Umsóknarfrestur er til hádegis, 4. mars 2026.
Lesa meira

Kynningarfundur á Norðurlandi vestra fyrir íslenskar útflutningsgreinar

Fjallað verður um niðurstöður endurskoðaðrar útflutningsstefnu og helstu þjónustu og aðgerðir Íslandsstofu fyrir útflutningsfyrirtæki.
Lesa meira

Sam­talið er hafið – farsældarráðin eru lykillinn

Undanfarið hafa málefni barna og ungmenna verið mikið til umræðu í samfélaginu. Áhyggjur af líðan, frammistöðu í skóla, ofbeldi og félagslegri einangrun hafa kallað fram háværar raddir um að eitthvað þurfi að breytast. Í umræðunni er ítrekað kallað eftir auknu samstarfi innan kerfisins og að ólíkar fagstéttir, foreldrar og ungt fólk leggist saman á árarnar við að móta lausnir og raunhæfar aðgerðir. Inga Sæland, nýskipaður mennta- og barnamálaráðherra og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands ræddu einmitt þetta í Sprengisandi á Bylgjunni þann 25. janúar síðastliðinn. Þar var lögð áhersla á mikilvægi samtals og samvinnu á milli fagfólks og ólíkra þjónustukerfa. Þessi skilaboð eru mikilvæg og tímabær.
Lesa meira

Aug­lýst eft­ir um­sókn­um um styrki til frá­veitu­fram­kvæmda

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda, en í fjárlögum 2026 er gert ráð fyrir að 378 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til og með 9. febrúar 2026.
Lesa meira

Segjum frá því sem vel er gert

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Orðsporsins 2026, viðurkenningar sem veitt er árlega á Degi leikskólans, 6. febrúar, fyrir framúrskarandi skólastarf, umbætur og þróun í menntamálum eða nýstárlega kennsluhætti á leikskólastiginu. Öll áhugasöm um leikskólastarf geta sent inn tilnefningu og er það gert í gegnum rafrænan tilnefningarlista, sjá hér. Frestur til að senda inn tilnefningu er til 2. febrúar 2026.
Lesa meira