10.03.2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tónlistarsjóð og er umsóknarfrestur til 15. apríl kl. 15:00. Fyrir þau sem hyggjast sækja um býður Tónlistarmiðstöð jafnframt upp á umsóknarsmiðju þriðjudaginn 7. apríl kl. 15–18, þar sem umsækjendur geta unnið að umsóknum sínum í góðum félagsskap, skipst á hugmyndum og fengið betri innsýn í umsóknarferlið.
Veittir eru styrkir í fimm flokkum: tónlistarstyrkir, flytjendastyrkir, viðskiptastyrkir, markaðsstyrkir og ferðastyrkir.
Lesa meira
06.03.2026
Verkefnið Sunnudagar á safni, sem er hluti af samstarfi safna hjá SSNV, heldur áfram sunnudaginn 15. mars, en þá færist dagskráin í Skagafjörð.
Markmið verkefnisins er að efla samstarf safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra og bjóða íbúum og gestum upp á sérstaka menningarupplifun yfir vetrartímann, þegar margir þessara staða eru annars lokaðir.
Lesa meira
05.03.2026
Nemendur í Viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum standa fyrir málþingi þriðjudaginn 17. mars kl. 13:00-16:00, þar sem fjallað verður um samfélagsleg áhrif viðburða.
Á málþinginu verður meðal annars rætt um öryggismál viðburða og mikilvægi þeirra fyrir samfélög og efnahagslíf. Auk þess verður fjallað um sjálfbærni í tengslum í viðburðahald og sértækan viðburð, Landsmát hestamanna, sem fer fram á Hólum næsta sumar.
Lesa meira
05.03.2026
Tækniþróunarsjóður býður upp á styrkinn Fræ, sem er undirbúningsstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.
Lesa meira
02.03.2026
Opnað fyrir umsóknir í Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina
Lesa meira
27.02.2026
Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda 7. mars 2026 kl. 10:00 til 15:00 í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði
Lesa meira
27.02.2026
Nemendur takast á við öryggi kvenna í Afganistan á Model UN
Lesa meira
26.02.2026
Á fyrsta fundi farsældarráðs Norðurlands vestra, sem haldin var 26. febrúar á Harbour á Skagaströnd, komu saman fulltrúar allra sveitarfélaga, þjónustuveitendur og stofnanir sem sitja í ráðinu sem og fulltrúi foreldra. Þetta var stuttur fundur sem markar áframhaldandi skref í átt að aukinni farsæld barna í landshlutunum.
Lesa meira
25.02.2026
Fundargerð 137. fundar stjórnar SSNV, 24. febrúar 2026
Lesa meira
25.02.2026
Fundargerð 136. fundar stjórnar SSNV, 19. febrúar 2026
Lesa meira