Opið kall til listafólks á Norðurlandi vestra - Open Call for Artists in Northwest Iceland

Undirbúningur Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar á Norðurlandi vestra, er hafinn! Preparations for Skúnaskrall, a children's culture festival in Northwest Iceland, have begun! Hátíðin mun fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 og þema hátíðarinnar er „Öll saman“. The festival will take place from October 21st to November 4th 2026, and the theme of the festival is 'All Together.' Óskað er eftir samstarfi við listafólk búsett í landshlutanum til að bjóða upp á listar- og menningarviðburði og/eða vinnustofur fyrir börn og ungmenni á hátíðinni. Collaboration with artists based in the region is hereby requested to offer arts and cultural events and/or workshops for children and youth at the festival.
Lesa meira

Ungmenni kalla eftir skýrari hlutverkum og aðkomu í ákvarðanatöku

Ungmenni úr ungmennaráðum víðs vegar af landinu tóku þátt í ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga í desember síðastliðnum á vegum Sambandsins. Þar kom augljóslega fram hjá ungmennunum að þau vilja að sveitarstjórnir veiti þeim skýrara hlutverk og raunveruleg áhrif í ákvarðanatöku. Þau lögðu áherslu á mikilvægi aðkomu að stefnumótun í málum sem varða daglegt líf þeirra, svo sem samgöngur, skólamál, frístundir, öryggi í nærumhverfi og aðgengi að þjónustu.
Lesa meira

Auglýst eftir umsóknum um listviðburði fyrir skólaárið 2026 - 2027

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytisins sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Umsóknarfrestur er til 22. mars 2026.
Lesa meira

Fundur um Velferð og vá

Í gær, 17. febrúar, stóðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands fyrir fundi í Félagsheimilinu á Blönduósi um hlutverk og mikilvægi félagsþjónustu í almannavarnaástandi.
Lesa meira

Ný handbók um strategískan skýrleika – öflugt verkfæri fyrir ráðgjöf til frumkvöðla

SSNV kynnir nýja hagnýta handbók fyrir ráðgjafa sem styðja frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki í að skýra stefnu, sannreyna forsendur og hrinda hugmyndum í framkvæmd með markvissum hætti.
Lesa meira

Nýr leiðarvísir og Loftslagsatlas styðja sveitarfélög í aðlögun að loftslagsbreytingum

Nýr leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga er nú tilbúinn og aðgengilegur. Leiðarvísirinn er ætlaður til að styðja sveitarfélög í markvissri vinnu við að greina áhættu, forgangsraða aðgerðum og samþætta aðlögun loftslagsbreytingum í stefnumótun, skipulag og daglegan rekstur. Þessi fyrsta útgáfa leiðarvísisins er afrakstur aðgerðar C.10 í núgildandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Aðgerðin var samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
Lesa meira

Tónlistarhátíðir á landsbyggðinni hvattar til að sækja um styrk

Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við Íslandsstofu, kallar nú eftir umsóknum í Hátíðapottinn – stuðningsverkefni sem miðar að því að efla alþjóðlega kynningu íslenskra tónlistarhátíða með komu erlendra fjölmiðla til landsins. Sérstök áhersla er lögð á hátíðir utan höfuðborgarsvæðisins. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.
Lesa meira

Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga - málþing

Byggðastofnun, í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið boðar til málþings í Hofi, Akureyri, í dag 12. febrúar undir yfirskriftinni: Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga - Frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga.
Lesa meira

Sunnudagar á safni

Sunnudagar á safni er samstarfsverkefni safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra sem skiptast á að opna dyrnar fyrir íbúum og gestum svæðisins. Hvetjum við öll áhugasöm um menningu svæðisins til að nýta sér þetta góða boð.
Lesa meira

Opið fyrir styrki til atvinnumála kvenna

Styrkir til atvinnumála kvenna 2026 auglýstir – tækifæri fyrir nýsköpun og atvinnuuppbyggingu
Lesa meira