Störf í boði

5. nóvember 2026
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í geðlækningum. Um er að ræða 25% - 50% starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi. Unnið er í nánu samstarfi við þverfaglegt geðheilsuteymi. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í kennslu annarra heilbrigðisstétta og handleiðslu sérnámslækna, með sveigjanlegu starfshlutfalli (25-50%) með möguleika á staðvinnu og fjarvinnu. Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (< www.hvest.is >). Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks. Starfshlutfall er 25-50%. Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026. Sótt er um hér .

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Utanríkisráðuneytið sendir reglulega sérfræðinga til að sinna tímabundnum verkefnum á vettvangi á sviði þróunarsamvinnu. Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á starfsstöðvum ráðuneytisins í Afríku. Samkvæmt lögum nr. 121/2008 um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands er utanríkisráðuneytinu heimilt að ráða starfsmenn til tímabundinna starfa við afmörkuð verkefni í þróunarsamvinnu erlendis. Ekki er um fastráðningu að ræða og hámarkslengd ráðningar eru fimm ár. Með þessari auglýsingu er áhugasömum boðið að skrá sig á sérfræðingalista á sviði þróunarsamvinnu. Áréttað er að skráning þessi felur ekki í sér skuldbindingu til ráðningar, hvorki af hálfu utanríkisráðuneytisins né þeirra einstaklinga sem lýst hafa áhuga á að sinna tímabundnum verkefnum á vegum ráðuneytisins. Ráðuneytið metur í hverju tilviki fyrir sig hvaða þekking, kunnátta eða reynsla kemur að mestum notum við ráðningar í einstök verkefni og áskilur sér rétt til að vera ekki bundið af framangreindri skrá. Helstu verkefni og ábyrgð Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á starfsstöðvum ráðuneytisins í Afríku. Hæfniskröfur Haldgóð menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði þróunarsamvinnu, verkefnastjórnunar, fjölmiðlunar, hagfræði, verkfræði, stjórnmálafræði eða mannfræði. Reynsla af störfum á sviði þróunarsamvinnu er skilyrði. Reynsla af störfum á vettvangi í þróunarríkjum er kostur. Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Lipurð í mannlegum samskiptum og gott menningarlæsi. Geta til að aðlagast krefjandi aðstæðum erlendis. Viðkomandi þarf að vera íslenskur ríkisborgari, vera með hreint sakavottorð og fullnægja skilyrðum um öryggisvottun hjá Ríkislögreglustjóra sbr. reglur nr. 959/2012. Frekari upplýsingar um starfið Skráning fer fram á eftirfarandi hlekk og með henni skal fylgja kynningarbréf að hámarki 1 bls. og ferilskrá að hámarki 1 bls. Launakjör Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2027. Sótt er um hér . Nánari upplýsingar veitir Pálína Björk Matthíasdóttir ( throunarsamvinna@utn.is ).

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Orkusamfélag Steingerðar auglýsa eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og spennandi starf. Um er að ræða 100% starf sem skiptist til helminga milli byggðaþróunarverkefna SSNV og Evrópuverkefnisins DEPLOY-PED, sem Orkusamfélag Steingerðar tekur þátt í. Starfið hentar einstaklingi sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun landshlutans og starfa í alþjóðlegu samstarfi. Hjá SSNV mun viðkomandi meðal annars sinna umhverfis- og loftslagstengdum verkefnum, sóknaráætlun Norðurlands vestra og eftirfylgni með stefnum sem varða landshlutann. Í DEPLOY-PED tekur hann þátt í evrópsku samstarfi á sviði orkumála og sjálfbærni, með samstarfsaðilum víða um Evrópu. Starfið býður því upp á einstakt tækifæri til að tengja staðbundna byggðaþróun við alþjóðlega þekkingu og tengslanet. Um vinnustaðinn SSNV eru samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þau gæta hagsmuna landshlutans og vinna að atvinnu- og byggðaþróun, nýsköpun og menningu. SSNV heldur einnig utan um sóknaráætlun landshlutans og Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Hjá samtökunum starfar samhentur hópur sjö starfsmanna. Orkusamfélag Steingerðar er samstarfsvettvangur kúabænda í Húnaþingi vestra sem vinna að uppbyggingu lífgasframleiðslu í héraði, þar sem mykju er breytt í metan og áburð. Félagið vinnur íslenska sýnisverkefnið í DEPLOY-PED, Evrópuverkefni styrktu af Horizon Europe, sem miðar að því að þróa orkujákvæð héruð sem framleiða meiri endurnýjanlega orku en þau nota. Við bjóðum Fjölbreytt og krefjandi starf með raunveruleg áhrif á framtíð landshlutans Tækifæri til að byggja upp tengslanet, innanlands og á evrópskum vettvangi 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma Starfsstöð er á Hvammstanga. Starfinu fylgja ferðalög, bæði innan landshlutans og erlendis. Laun fara eftir kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags innan BHM. Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, í síma 866 5390 eða á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is . Sótt er um hér .

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Vilt þú taka þátt í að móta og þróa geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Norðurlandi? Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að metnaðarfullum og drífandi barnasálfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að styðja við börn og ungmenni. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN og/eða í fjarvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. HSN veitir börnum og ungmennum upp að 18 ára aldri 1. og 2. línu þjónustu þar sem börnum með vægan til miðlungsalvarlegan vanda er sinnt í sálfræðiteyminu og þverfaglegt geðheilsuteymi barna sinnir börnum með flóknari vanda. Lögð er áhersla á gagnreynt verklag, bæði í einstaklingsmeðferð og foreldramiðaðri meðferð. Spennandi tímar eru framundan þar sem þjónustan er í umbreytingarferli í samræmi við áætlanir Heilbrigðisráðuneytisins (sjá Stöðuskýrslu um umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn ). Jafnframt er að hefjast metnaðarfullt átaksverkefni sem miðar að því að efla greiningu og meðferð barna með ADHD einkenni að lokinni frumgreiningu. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu og framtíð þjónustunnar. Við leitum að sálfræðingi sem hefur áhuga á klínísku starfi, vill þróast í faginu og leggja sitt af mörkum til að bæta geðheilsu barna og fjölskyldna. Hjá HSN færð þú tækifæri til að starfa í öflugu þverfaglegu teymi þar sem fagmennska, samstarf og gagnreyndar meðferðaraðferðir eru í forgrunni. Við leggjum jafnframt ríka áherslu á faglega þróun starfsfólks og bjóðum upp á reglubundna og vandaða handleiðslu sem styður við faglegan vöxt, öryggi í starfi og gæði þjónustunnar. Sálfræðingar af öllum kynjum, reynslumiklir jafnt sem reynsluminni eru hvattir til þess að sækja um starfið. Sömuleiðis eru sálfræðingar með reynslu af meðferð barna sem og fullorðinna hvattir til að sækja um. Helstu verkefni og ábyrgð Greining vægra til miðlungsalvarlegra einkenna kvíða, þunglyndis og áfallastreituröskunar hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri Meðferð vægra til miðlungsalvarlegra einkenna kvíða, þunglyndis og áfallastreituröskunar hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri Uppeldisráðgjöf til foreldra Þátttaka í frekari uppbyggingu gagnreyndrar geðheilbrigðisþjónustu við börn á þjónustusvæði HSN Samstarf við aðrar fagstéttir og þjónustuveitendur Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur Sálfræðingur með löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir því að veita árangursríka, gagnreynda meðferð Þekking og reynsla af notkun sálfræðilegra matstækja og greiningu algengustu geðraskana barna og ungmenna er kostur Þekking á greiningum taugaþroskavanda er kostur Þekking á gagnreyndum meðferðarúrræðum við geðröskunum barna og ungmenna er kostur, bæði varðandi einstaklings- hóp- og/eða foreldramiðaða meðferð Lausnamiðuð hugsun, góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hlýtt viðmót Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi Frekari upplýsingar um starfið Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu. Starfssvæði HSN nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri og þjónustan er veitt á fjölmörgum starfsstöðvum víðs vegar um Norðurland. Umfangsmikil starfsemi stofnunarinnar og öflugt samstarf fagfólks á milli starfsstöðva skapa fjölbreytt og spennandi starfsumhverfi þar sem tækifæri gefast til faglegrar þróunar og þátttöku í áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í landshlutanum. Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. Launakjör Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert. Starfshlutfall er 80-100%. Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026. Sótt er um hér . Nánari upplýsingar veita Aðalheiður Jónsdóttir, aðstoðaryfirsálfræðingur ( adalheidur.jonsdottir@hsn.is ), sími 432 4672 og María Bjarnadóttir, teymisstjóri geðheilsuteymis barna ( maria.bjarnadottir@hsn.is ), sími 432 4738.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Skagaströnd, Sæborg óskar eftir jákvæðum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í aðhlynningu og í býtibúr. Um er að ræða vaktavinnu á heimili þar sem rík áhersla er lögð á hlýja, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu við íbúa. Ráðningarhlutfall er 40-100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. VIð leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum, ríka samskiptahæfni og vinnur vel bæði sjálfstætt og í teymi. Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar Uppfært: Umsóknafrestur sem áður var 29. október 2026 hefur verið framlengdur til 9. nóvember 2026. Allar umsóknir sem bárust fyrir upphaflega frestinn eru áfram gildar og verða teknar til jafns við umsóknir sem berast á framlengda tímabilinu. Helstu verkefni og ábyrgð Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila Verkefni í býtibúri tengd undirbúningi og frágangi máltíða Þátttaka í teymisvinnu Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar Þvottur og skyld störf, móttaka og frágangur á þvotti Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur en ekki skilyrði Frumkvæði, sveigjanleiki í starfi og sjálfstæð vinnubrögð Góð íslensku- eða enskukunnátta Hreint sakavottorð og gott orðspor Frekari upplýsingar um starfið Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing. Launakjör Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert. Starfshlutfall er 40-100%. Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026. Sótt er um hér . Nánari upplýsingar veita Eydís Inga Sigurjónsdóttir, deildarstjóri ( eydis.inga.sigurjonsdottir@hsn.is ), sími 453 4170 og Helga Margrét Jóhannesdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis ( helga.margret.johannesdottir@hsn.is ), sími 432 4100.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir jákvæðum og þjónustulunduðum sjúkraliða/ sjúkraliðanema á hjúkrunardeild. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Ráðningartími og starfshlutfall er skv. samkomulagi. Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt. Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira. Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi Helstu verkefni og ábyrgð Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila Eftirlit með líðan íbúa og miðlun mikilvægra upplýsinga til hjúkrunarteymis Skráning og meðferð upplýsinga samkvæmt verklagsreglum og gæðaviðmiðum Þátttaka í teymisvinnu Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og umbótaverkefnum eftir því sem við á Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ staðfesting á námi fyrir nema Reynsla af umönnunar er kostur Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni Áhugi á að starfa með fólki Áreiðanleiki og sveigjanleiki Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi Góð íslenskukunnátta skilyrði Hreint sakavottorð og gott orðspor Frekari upplýsingar um starfið Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf á íslensku ásamt afriti af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing. HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu. Launakjör Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert. Starfshlutfall er 50-100%. Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026. Sótt er um hér . Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis ( sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is ), sími 432 4200.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu á hjúkrunardeildir. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Ráðningartími er skv. samkomulagi en í boði er bæði tímabundin og ótímabundin störf. Starfshlutfall er skv. samkomulagi. Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt. Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira. Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi Helstu verkefni og ábyrgð Aðstoða íbúa við athafnir daglegs lífs og almenna umönnun Veita stuðning sem eykur vellíðan og virkni íbúa Fylgjast með líðan íbúa og láta fagfólk vita af breytingum Aðstoða við frágang, þrif og daglegan rekstur deildarinnar Þátttaka í teymisvinnu Önnur tilfallandi störf Hæfniskröfur Reynsla af umönnunar er kostur Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni Áhugi á að starfa með fólki Áreiðanleiki og sveigjanleiki Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun Góð íslenskukunnátta skilyrði Hreint sakavottorð og gott orðspor Frekari upplýsingar um starfið Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu. Launakjör Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Aldan, stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 50-100%. Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026. Sótt er um hér . Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis ( sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is ), sími 432 4200.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
5. nóvember 2026
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd. Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga annast afgreiðslu á umsóknum um atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Meðal verkefna skrifstofunnar er að taka ákvarðanir um réttindi einstaklinga til atvinnuleysisbóta, greiða bætur og annast eftirlit. Ásamt því að sjá um innheimtur á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Sérfræðingur mun sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna, eftirliti með greiðslum atvinnuleysisbóta, tekur þátt í þróun verkferla og öðrum verkefnum á verkefnasviði skrifstofunnar, eftir því sem við á. Starfið kallar á samskipti við önnur svið stofnunarinnar og sérfræðiaðstoð við þjónustuþega hennar. Starfstöð sérfræðings er á Skagaströnd. Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni og ábyrgð · Upplýsingagjöf og úrlausn mála í tengslum við greiðslur, viðurlög og bótarétt. · Afgreiðsla á málum er varða eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta. · Samskipti og sérfræðiaðstoð við önnur svið stofnunarinnar og þjónustuþega hennar. · Margvísleg skrifstofustörf, símsvörun og önnur tilfallandi verkefni. Menntunar- og hæfniskröfur · Háskólamenntun sem nýtist í starfi. · Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. · Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu. · Góð íslensku- og enskukunnátta. · Góð tölvukunnátta. · Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og opinberri stjórnsýslu telst kostur. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðunin um ráðningu hefur verið tekin. Starfshlutfall er 100 % og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Sótt er um hér . Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Davíð Birkir Tryggvason deildarstjóri eftirlits- og innheimtudeildar ( david.b.tryggvason@vmst.is ) og Hallveig Ragnarsdóttir mannauðsstjóri ( mannaudssvid@vmst.is ) eða í síma 515-4800.