5. nóvember 2026
Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúri Sæborg - HSN Skagaströnd
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Skagaströnd, Sæborg óskar eftir jákvæðum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í aðhlynningu og í býtibúr. Um er að ræða vaktavinnu á heimili þar sem rík áhersla er lögð á hlýja, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu við íbúa. Ráðningarhlutfall er 40-100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
VIð leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum, ríka samskiptahæfni og vinnur vel bæði sjálfstætt og í teymi.
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Uppfært: Umsóknafrestur sem áður var 29. október 2026 hefur verið framlengdur til 9. nóvember 2026. Allar umsóknir sem bárust fyrir upphaflega frestinn eru áfram gildar og verða teknar til jafns við umsóknir sem berast á framlengda tímabilinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila
- Verkefni í býtibúri tengd undirbúningi og frágangi máltíða
- Þátttaka í teymisvinnu
- Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar
- Þvottur og skyld störf, móttaka og frágangur á þvotti
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
- Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur en ekki skilyrði
- Frumkvæði, sveigjanleiki í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslensku- eða enskukunnátta
- Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Launakjör
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Starfshlutfall er 40-100%.
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026.
Sótt er um hér.
Nánari upplýsingar veita Eydís Inga Sigurjónsdóttir, deildarstjóri (eydis.inga.sigurjonsdottir@hsn.is), sími 453 4170 og Helga Margrét Jóhannesdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis (helga.margret.johannesdottir@hsn.is), sími 432 4100.