5. nóvember 2026
Starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunardeildir - HSN Sauðárkróki
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu á hjúkrunardeildir. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Ráðningartími er skv. samkomulagi en í boði er bæði tímabundin og ótímabundin störf. Starfshlutfall er skv. samkomulagi.
Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.
Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira.
Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða íbúa við athafnir daglegs lífs og almenna umönnun
- Veita stuðning sem eykur vellíðan og virkni íbúa
- Fylgjast með líðan íbúa og láta fagfólk vita af breytingum
- Aðstoða við frágang, þrif og daglegan rekstur deildarinnar
- Þátttaka í teymisvinnu
- Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
- Reynsla af umönnunar er kostur
- Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
- Áhugi á að starfa með fólki
- Áreiðanleiki og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
- Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Launakjör
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Aldan, stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 50-100%.
Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026.
Sótt er um hér.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis (sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is), sími 432 4200.