Útibúið
Í Útibúinu eru til útleigu skrifstofurými í björtu og glæsilegu húsnæði hjá Landsbankanum á Hvammstanga. Val er um annars vegar opin rými sem stúkuð eru af með hljóðdempandi skilrúmum og hins vegar lokaðar skrifstofur. Boðið er upp á bæði langtíma og skammtíma leigu.
Tilvalið fyrir þá sem vinna heima en vilja komast í notalegt vinnustaðarumhverfi en einnig fyrir þá sem vilja framlengja fríið sitt og geta átt tækifæri á því að vinna í leiðinni.
Verð pr. dag er 3.000 krónur.
Hafið samband á bokhald@ssnv.is fyrir fyrirspurnir um mánaðarleigu.
MEÐ ÖLLUM VINNUSTÖÐVUM FYLGIR EFTIRFARANDI:
- Upphækkanlegt rafmangsskrifborð
- Aðgengi að fundarherbergi
- Skrifborðsstóll
- Hirslur
- Nettenging og þrif innifalin
- Aðgengi að stóru sameiginlegu eldhúsi
- Góður félagsskapur

Sjáðu video um Útibúið á Hvammstanga