5. nóvember 2026

Sjúkraliði/sjúkraliðanemi - HSN Sauðárkróki

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir jákvæðum og þjónustulunduðum sjúkraliða/ sjúkraliðanema á hjúkrunardeild. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Ráðningartími og starfshlutfall er skv. samkomulagi.

Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.

Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira.

Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila
  • Eftirlit með líðan íbúa og miðlun mikilvægra upplýsinga til hjúkrunarteymis
  • Skráning og meðferð upplýsinga samkvæmt verklagsreglum og gæðaviðmiðum
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga
  • Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og umbótaverkefnum eftir því sem við á
  • Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ staðfesting á námi fyrir nema
  • Reynsla af umönnunar er kostur
  • Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
  • Áhugi á að starfa með fólki
  • Áreiðanleiki og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
  • Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakavottorð og gott orðspor


Frekari upplýsingar um starfið

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf á íslensku ásamt afriti af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.


Launakjör

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.


Starfshlutfall er 50-100%.

Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026.

Sótt er um hér.

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis (sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is), sími 432 4200.