Fundagerðir

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 2. október 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 22. september 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Magnús Magnússon, formaður, setti fundinn og stjórnaði honum. Dagskrá: Rarik kemur til fundar Tillögur að breytingum á samþykktum SSNV Samstarfssamningur um Eim Fjárhags- og starfsáætlun ársins 2027 Samstarfsverkefni við Orkufélag Steingerðar Haustþing SSNV Drög að ályktunum Skýrsla um menningarhús á landsbyggðinni Framlögð mál til kynningar Fundargerðir Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Rarik kemur til fundar Fulltrúar Rarik koma á fund stjórnar SSNV. Tilgangur samtalsins er að ræða þau tækifæri sem felast í uppbyggingu innviða á Norðurlandi vestra. Stjórn þakkar fulltrúum Rarik fyrir upplýsandi og gott samtal. 2. Tillögur að breytingum á samþykktum SSNV Lagðar voru fram tillögur að breytingum á samþykktum SSNV til umfjöllunar í stjórn. Breytingarnar snúa að skipun formanns úthlutunarnefndar. Stjórn samþykkir að leggja framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum SSNV til umræðu og afgreiðslu á haustþingi samtakanna. 3. Samstarfssamningur um Eim Lagður var fram samstarfssamningur um verkefnið Eim til umfjöllunar og afgreiðslu í stjórn SSNV. Stjórn samþykkir að framlag SSNV inn í samstarfsverkefnið Eim verði 10 milljónir á ári út samningstímann, 2027-2029. Samstarfsverkefnið verður skilgreint sem áhersluverkefni sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Stjórn felur framkvæmdastjóra að undirrita samninginn fyrir hönd samtakanna. 4. Fjárhags- og starfsáætlun ársins 2027 Fjárhags- og starfsáætlun SSNV fyrir árið 2027 lagðar fyrir stjórn til kynningar og umræðu. Matthías Rúnarsson, bókari SSNV, kom til fundar og fór yfir fjárhagsáætlun. Stjórn þakkar fyrir góða yfirferð og felur framkvæmdastjóra að gera breytingar á fjárhagsáætlun í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir haustþing til umræðu og afgreiðslu. 5. Samstarfsverkefni við Orkufélag Steingerðar Stjórn SSNV ræddi um möguleika á sameiginlegum starfsmanni með Orkusamfélagi Steingerðar, þar sem starfshlutfallið skiptist milli DEPLOY-PED Evrópuverkefnisins og atvinnuráðgjafar fyrir SSNV. Málið var framhald af kynningu Eims á Deploy-PED verkefninu á síðasta fundi. Stjórn felur framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Orkusamfélag Steingerðar á grundvelli þess sem rætt var á fundinum og bera samninginn undir stjórn. 6. Haustþing SSNV Farið var yfir lokaatriði er varða undirbúning og framkvæmd haustþings SSNV. Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda út gögn til þingfulltrúa. 7. Drög að ályktunum Drög að ályktunum sem lagðar verða fyrir haustþing SSNV voru lögð fram til yfirferðar og umræðu í stjórn. Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda ályktanir til þingfulltrúa með áorðnum breytingum. 8. Skýrsla um menningarhús á landsbyggðinni Berglind Björnsdóttir, starfsmaður SSNV, kom til fundar og fór yfir skýrslu um menningarhús á landsbyggðinni (B9). Stjórn þakkar Berglindi fyrir góða yfirferð og fagnar útkomu skýrslunnar. Stjórn skorar jafnframt á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að gaumgæfa næstu skref hvað varðar aðgerð B9 á Byggðaáætlun. 9. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn Vestfjarðarstofu, 27. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn SSV, 26. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 7. september 2026. Fundargerðin. Stjórn SSS, 12. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn SASS, 4. september 2026. Fundargerðin. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 28. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. ágúst 2026. Fundargerðin. Um­hverf­is- og inn­viðanefnd Sam­bands­ins, 1. september 2026. Fundargerðin . Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál, 7. september 2026. Fundargerðin. Framkvæmdahópur farsældarráðs, 31. ágúst 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Frumvarp til fjárlaga 2027 . Mál nr. 1/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. október 2026. Breyting á ýmsum lögum vegna fjár ­ laga 2027 . Mál nr. 2/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026. Frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Mál nr. 5/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026. Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl . Mál nr. 4/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026. Stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030. Mál nr. 75/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026. Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó – Áform . Mál nr. S-172/2026. Umsagnarfrestur er til og með 25. september 2026. Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna . Mál nr. S-178/2026. Umsagnarfrestur er til og með 2. október 2026. Framkvæmdastjóra falið að gera drög að umsögnum um Frumvarp til fjárlaga 2027, Breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027, Stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030, og Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó – Áform. 10. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.04. Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 19. september 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Mánudaginn 31. ágúst 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Farsæld barna Eimur Forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 Úthlutunar- og starfsreglur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra Haustþing SSNV Framlögð mál til kynningar a)Fundargerðir b)Umsagnir 7. Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Farsæld barna Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri Farsældar, kom til fundar og fór yfir verkefni farsældar barna. Stjórn þakkar Söru fyrir greinargóða yfirferð. Stjórn SSNV telur brýnt að ríkið tryggi áframhaldandi fjármuni til rekstrar verkefnis um farsæld barna. 2. Eimur Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, og Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærrar viðskiptaþróunar hjá Eimi, komu til fundar og kynntu evrópuverkefnið DEPLOY-PED og tillögu um ákveðna aðkomu SSNV. Stjórn þakkar Ottó og Sigurði fyrir greinargóða kynningu og felur framkvæmdastjóra SSNV að skoða málið nánar, þar á meðal samantekt á umfangi og eðli mögulegrar aðkomu samtakanna í minnisblaði, og leggja fyrir stjórn. 3. Forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 Matthías Rúnarsson, bókari samtakanna, kom til fundar og fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027. Stjórn þakkar Matthíasi fyrir góða yfirferð og felur framkvæmdastjóra að stilla fjárhagsáætlun upp í samræmi við umræður á fundinum. 4. Úthlutunar- og starfsreglur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra Berglind Björnsdóttir og Guðlaugur Skúlason komu til fundar og fóru yfir tillögur að breytingum á úthlutunarreglum Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. Stjórn þakkar Berglindi og Guðlaugi fyrir góða yfirferð og samþykkir framlagðar tillögur að breytingum á úthlutunarreglum. 5. Haustþing SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir undirbúning og skipulag haustþings SSNV sem halda á 1. október í Húnaþingi vestra. Stjórn samþykkir drög að dagskrá og felur framkvæmdastjóra að senda út fundarboð. Jafnframt óskar stjórn sérstaklega eftir viðveru þingmanna kjördæmisins og Innviðaráðherra á haustþinginu. 6. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSNE, 11. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 11. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn Vestfjarðarstofu, 26. júní 2026. Fundargerðin. Stjórn SSV, 10. júní 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 17. ágúst 2026. Fundargerðin. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 20. maí 2026. Fundargerðin. Um­hverf­is- og inn­viðanefnd Sam­bands­ins, 2. júní 2026. Fundargerðin . b) Umsagnir Drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003 . Mál nr. S-122/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. september 2026. 7. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11.53. Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 17. ágúst 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Fimmtudaginn 13. ágúst 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 13:00. Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Halldór Jón Sigurðsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Starfsmannamál Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra Haustþing SSNV Niðurstöður vinnustofunnar um græna iðngarða 6 mánaða uppgjör Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir b) Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Starfsmannamál Starfsfólk SSNV kom til fundar og fór yfir helstu verkefni og ábyrgðarsvið hvers starfsmanns, ásamt stöðu verkefna og verkefnaálagi. Markmið kynningarinnar var að veita stjórn heildstæða yfirsýn yfir starfsemi samtakanna og skapa grundvöll fyrir umræðu um framtíðarskipulag. Stjórn þakkar starfsfólki fyrir greinargóða yfirferð. Stjórn ræddi í framhaldinu verkefni og framtíðarskipulag samtakanna með hliðsjón af þeirri yfirsýn sem fram kom. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir stöðu atvinnuráðgjafa með áherslu á fjárfestingar. 2. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra Guðlaugur Skúlason og Berglind Björnsdóttir komu til fundar og fóru yfir komandi umsóknarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. Stjórn þakkar Guðlaugi og Berglindi fyrir góða yfirferð. 3. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaða yfirfærslu verkefna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, þar á meðal fyrirhugaða fundi og önnur atriði sem tengjast framgangi málsins. Málið var lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu. Stjórn ræddi stöðu málsins og þær breytingar sem fyrirhuguð yfirfærsla kann að hafa í för með sér. Stjórn mun áfram fylgjast með framvindu málsins og þeim áhrifum sem breytingarnar kunna að hafa á sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. 4. Haustþing SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir undirbúning haustþings SSNV sem halda á 1. október í Húnaþingi vestra. Framkvæmdastjóra falið að hefja undirbúning þingsins í samræmi við samþykktir samtakanna. 5. Niðurstöður vinnustofunnar um græna iðngarða Niðurstöður vinnustofu um græna iðngarða, sem framkvæmdastjóri sat, lagðar fram til kynningar og umræðu. Stjórn telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að kortleggja styrkleika, auðlindir, innviði og fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra og að hagsmunir og tækifæri landshlutans verði sýnileg í þeirri vinnu sem framundan er á landsvísu. Stjórn felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir fyrir hönd SSNV. 6. 6 mánaða uppgjör Matthías Rúnarsson, bókari samtakanna, kom til fundar og fór yfir 6 mánaða uppgjör samtakanna. Rekstur er almennt skv. áætlun. Stjórn þakkar Matthíasi fyrir greinargóða yfirferð. 7. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSNE, 30. júní 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 4. júní 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Sviðslistastefna 2026-2030 . Mál nr. S-88/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Hvítbók um byggðamál . Mál nr. S-104/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi . Mál nr. S-105/2026. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026. Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar . Mál nr. S-138/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku . Mál nr. S-123/2026. Umsagnarfrestur er til og með 19. ágúst 2026. Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits. Mál nr. S-113/2026. Umsagnarfrestur er til og með 17. ágúst 2026. Umsögn SSNV um Sviðslistastefnu 2026-2030 samþykkt af stjórn og send inn í Samráðsgátt stjórnvalda. Afgreiðsla málsins er færð til bókar. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögnum um; Hvítbók um byggðamál, Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi, Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar, Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits. 8. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16.58. Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Halldór Jón Sigurðsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 16. ágúst 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Mánudaginn 6. júlí 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Kjör varaformanns Samþykktir og þingsköp SSNV Starfsreglur stjórnar SSNV Skipulag funda stjórnar SSNV Fulltrúi í Stafrænt ráð sveitarfélaga Fulltrúi í stjórn Eims Fulltrúi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands Fulltrúi SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. Haustþing SSNV Erindi vegna rannsókna á Landsmóti Hestamanna Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda Starfsmannamál Framlögð mál til kynningar Fundargerðir Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Kjör varaformanns Skv. grein 4.1 í samþykktum samtakanna skiptir stjórn með sér verkum. Stjórn samþykkir að skipa Jóhönnu Ey Harðardóttur sem varaformann. 2. Samþykktir og þingsköp SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir samþykktir og þingsköp SSNV með stjórnarmönnum. 3. Starfsreglur stjórnar SSNV Lögð fram drög að starfsreglum stjórnar. Stjórn samþykkir uppfærðar starfsreglur stjórnar. 4. Skipulag funda stjórnar SSNV Framkvæmdastjóri leggur fram drög að skipulagi funda stjórnar og fasta liði funda. Stjórn samþykkir framlagt fundarskipulag. Stjórnarfundir verða að jafnaði fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl. 9:00. 5. Fulltrúi í Stafrænt ráð sveitarfélaga Stjórn skipar fulltrúa í Stafrænt ráð sveitarfélaga. Stjórn samþykkir að skipa Jóhönnu Ey Harðardóttir í Stafrænt ráð sveitarfélaga til tveggja ára. 6. Fulltrúi í stjórn Eims Stjórn skipar einn aðalmann í stjórn Eims og einn til vara. Stjórn samþykkir að skipa Guðmund Hauk Jakobsson sem aðalmann í stjórn Eims til tveggja ára og Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur sem varamann til tveggja ára. 7. Fulltrúi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands Skv. samningi um rekstur áfangastaðastofu tilnefnir stjórn SSNV einn aðalmann í stjórn Markaðsstofu Norðurlands og einn til vara. Stjórn samþykkir að skipa Magnús Magnússon sem aðalmann í stjórn Markaðsstofu Norðurlands til tveggja ára og Davíð Birki Tryggvason til vara til tveggja ára. 8. Fulltrúi SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. Stjórn skipar fulltrúa SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. Stjórn samþykkir að skipa Einar E. Einarsson sem fulltrúa SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. til tveggja ára. 9. Haustþing SSNV Samkvæmt starfsáætlun SSNV fyrir árið 2026 er Haustþing SSNV áætlað miðvikudaginn 7. október. Þar sem fjármálaráðstefna sveitarfélaga fer fram í sömu viku er lagt til að finna þinginu nýja dagsetningu. Stjórn samþykkir að Haustþing SSNV fari fram fimmtudaginn 1. október í Húnaþingi vestra og hefjist kl. 14:00. 10. Erindi vegna rannsókna á Landsmóti hestamanna Lögð fram styrkbeiðni vegna rannsókna á efnahagslegum, samfélagslegum og umhverfislegum áhrifum af Landsmóti hestamanna. Stjórn samþykkir styrkbeiðnina og felur framkvæmdastjóra að boða deildarstjóra ferðamáladeildar Háskóla Íslands á Hólum til fundar til að ræða möguleg fleiri rannsóknarverkefni í landshlutanum. 11. Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra Áhersluverkefni Sóknaráætlunar eru verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans. Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn SSNV og þurfa að hljóta staðfestingu stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál. Lögð fram tillaga fyrir stjórn að nýju áhersluverkefni. Stjórn samþykkir tillögu að nýju áhersluverkefni sem nefnist “Skemmtiferðaskip á Norðurlandi vestra - samstarf, skipulag og markaðssókn”, með fyrirvara um samþykki stýrihóps Stjórnarráðs um byggðamál. Stjórn samþykkir að ráðstafa eftirstöðvum áhersluverkefnisins „Mótun, innleiðing og eftirfylgni samskiptastefnu fyrir svæðið“, að fjárhæð 1.500.000 kr., til verkefnisins á árinu 2026. Fjármögnun vegna ársins 2027 er vísað til fjárhagsáætlunar komandi árs. 12. Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gagnrýnt nýja reglugerð stjórnvalda um börn með fjölþættar stuðningsþarfir og telur að hún samræmist ekki samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá mars 2025 um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna. Að mati Sambandsins felur reglugerðin í sér að ríkið þrengi einhliða þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og færi þannig kostnað og ábyrgð aftur yfir á sveitarfélög. Málið er lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu. Stjórn SSNV lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Að mati stjórnar gengur reglugerðin gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna. Stjórn SSNV tekur undir sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga um að með reglugerðinni hafi ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem samkomulagið tekur til og færi þar með kostnað og ábyrgð að nýju yfir á sveitarfélög. Slík breyting er ekki í samræmi við markmið samkomulagsins og skapar verulega óvissu um framkvæmd þjónustunnar. Stjórn SSNV skorar á mennta- og barnamálaráðuneytið að endurskoða reglugerðina í samráði við sveitarfélög og standa við þær skuldbindingar sem ríkið tók á sig með samkomulagi aðila frá mars 2025. Framkvæmdastjóra falið að senda bókunina á mennta- og barnamálaráðherra, þingmenn Norðvesturkjördæmis og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga. 13. Starfsmannamál Farið var yfir málefni er varða starfsmannahald og önnur atriði sem tengjast starfsfólki SSNV. Sveinbjörg Rut Pétursdóttir vék af fundi undir þessum lið. Stjórn samþykkir að fela formanni að ganga til samninga við Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur um starf framkvæmdastjóra SSNV. 14. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SASS, 5. júní 2026. Fundargerðin . Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 8. júní 2026. Fundargerðin . Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. maí 2026. Fundargerðin . Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 9. júní 2026. Fundargerðin . Stjórn SSS, 10. júní 2026. Fundargerðin . b) Umsagnir Drög að reglugerð um heilsugæslu . Mál nr. S-110/2026. Umsagnarfrestur er til og með 24. júlí 2026. Sviðslistastefna 2026-2030 . Mál nr. S-88/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð . Mál nr. S-106/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Hvítbók um byggðamál . Mál nr. S-104/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi . Mál nr. S-105/2026. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026. 15. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.02. Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 15. ágúst 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf . Miðvikudaginn 3. júní 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Halldór Gunnar Ólafsson tók þátt á Teams. Formaður setti fund og óskaði eftir að taka á dagskrá sem 10. dagskrárlið bókun vegna erindis um fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum. Samþykkt samhljóða Dagskrá: Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra Ársfjórðungsuppgjör Kjörnefnd SSNV Auka ársþing SSNV Starfsmannamál Skemmtiferðaskip Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands Fundargerðir framkvæmdahóps Farsældarráðs Skýrsla um starf Flugklasans Bókun stjórnar vegna breytinga á lögregluembættum Framlögð mál til kynningar Fundargerðir Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra kemur til fundar og ræðir framtíð og stöðu heilbrigðiseftirlitsins í ljósi fyrirhugaðra breytinga og tilfærslu á verkefnum til ríkisins. Stjórn þakkar Sigríði fyrir greinargóða yfirferð. Ljóst er að mikil óvissa ríkir um verkefni Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, hvaða verkefni verða færð til ríkis og hvaða verkefni verða eftir hjá sveitarfélögunum við þá breytingu sem fyrirhuguð er á starfsemi þeirra skv. fyrirliggjandi frumvarpi um einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), mál nr. 582/2026. Ljóst er að fyrirhuguð breyting mun hafa mikil áhrif á rekstur og starfsmannahald heilbrigðiseftirlitsins. Framkvæmdastjóra falið að senda fyrirspurn á Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og óska svara við ýmsum spurningum sem snúa að stöðu heilbrigðiseftirlitsins og stöðu sveitarfélaganna verði breytingin að veruleika. 2. Ársfjórðungsuppgjör Matthías Rúnarsson, bókari SSNV, fór yfir ársfjórðungsuppgjör samtakanna. Rekstur er almennt skv. áætlun. 3. Kjörnefnd SSNV Skv. grein 4.3 í samþykktum SSNV skal stjórn kjósa kjörnefnd eigi síðar en 1. júlí fyrir aukaársþing eftir sveitarstjórnarkosningar. Stjórn samþykkir samhljóða að eftirfarandi fulltrúar séu kosnir í kjörnefnd: Guðmundur Haukur Jakobsson, Húnabyggð, formaður Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Skagaströnd Jódís Helga Káradóttir, Skagafirði Eyþór Fannar Sveinsson, Skagafirði Heiðrún Nína Axelsdóttir, Húnaþingi vestra 4. Auka ársþing SSNV Framkvæmdastjóri fer yfir undirbúning aukaársþings sem haldið verður rafrænt 29. júní nk. kl. 16:00. Framkvæmdastjóra falið að senda út fundarboð og dagskrá þegar sveitarfélög hafa skipað þingfulltrúa. Stjórn vill vekja athygli á að þingið er opið öllum kjörnum fulltrúum í landshlutanum til áheyrnar. 5. Starfsmannamál Lögð fram uppsögn Magnúsar Barðdal Reynissonar úr starfi verkefnastjóra á sviði fjárfestinga. Stjórn þakkar Magnúsi vel unnin störf í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum. 6. Skemmtiferðaskip Halldór Óli Kjartansson, starfsmaður Markaðsstofu Norðurlands, kemur til fundar og kynnir verkefni sem snýr að komu skemmtiferðaskipa. Stjórn tekur jákvætt í erindið og þakkar Halldóri fyrir greinargóða yfirferð á verkefninu og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram. 7. Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands Lagður fram til kynningar í samræmi við samning um rekstur Áfangastaðastofu. 8. Fundargerðir framkvæmdahóps Farsældarráðs Fundargerðir framkvæmdahóps Farsældarráðs lagðar fram til kynningar. 9. Skýrsla um starf Flugklasans Skýrsla um starf Flugklasans lögð fram til kynningar. 10. Bókun stjórnar vegna breytinga á lögregluembættum Lagt fram erindi frá Sigurði Hólmari Kristjánssyni, settum lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, þar sem hann lýsir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðra breytinga dómsmálaráðherra/Alþingis á lögregluembættum. Stjórn leggur fram eftirfarandi bókun: Stjórn SSNV lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem mögulegar breytingar á skipulagi lögregluembætta kunna að hafa á þjónustu, störf og stjórnsýslu í landshlutanum. Stjórn SSNV leggur áherslu á að löggæsla á Norðurlandi vestra gegnir lykilhlutverki í öryggi íbúa, farsæld barna og ungmenna og samstarfi við sveitarfélög, skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustuaðila. Mikilvægt er að allar breytingar á skipulagi taki mið af sérstöðu dreifbýlis, miklum vegalengdum og þeim aðstæðum sem einkenna Norðurland vestra. Stjórn SSNV telur mikilvægt að starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra verði ekki skert og að tryggður verði áframhaldandi rekstur lögreglustöðva á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Þá er nauðsynlegt að standa vörð um þau sérhæfðu störf, þá þekkingu og það faglega starf sem byggt hefur verið upp innan embættisins á undanförnum árum. Jafnframt leggur stjórn SSNV áherslu á að allar skipulagsbreytingar innan ríkisstofnana verði metnar með hliðsjón af byggðasjónarmiðum og áhrifum þeirra á atvinnu, þjónustu og samfélagsþróun í landshlutanum. Stjórnin telur mikilvægt að ákvarðanir um framtíðarskipan lögregluþjónustu á landsbyggðinni verði teknar í virku samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Stjórn SSNV leggur áherslu á að hagsmunir íbúa og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra verði hafðir að leiðarljósi við alla stefnumótun og ákvarðanatöku um skipulag lögregluþjónustu í landshlutanum. Framkvæmdastjóra falið að senda bókunina til dómsmálaráðherra og þingmanna kjördæmisins. 11. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSNE, 7. maí 2026. Fundargerðin. Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 4. maí 2026. Fundargerðin . Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 8. maí 2026. Fundargerðin . Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 20. maí 2026. Fundargerðin. Stjórn SSS, 13. Maí 2026. Fundargerðin . Stjórn SSA, 24. apríl 2026. Fundargerðin . b) Umsagnir Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun . Mál nr. S-79/2026. Umsagnarfrestur er til og með 30. júní 2026. Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga) . Mál nr. 93/2026. Umsagnarfrestur er til og með 19. júní 2026. 12. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.37. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 12. maí 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 5. maí 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Áhersluverkefni - staða verkefna Erindi frá Markaðsstofu Norðurlands Drög að samstarfssamningi um Eim Brák Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir b) Umsagnir 7. Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Áhersluverkefni - staða verkefna Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu og framvindu á áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. 2. Erindi frá Markaðsstofu Norðurlands Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um skemmtiferðaskip. Stjórn þakkar Markaðsstofunni fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með framkvæmdastjóra Markaðsstofunnar. 3. Drög að samstarfssamningi um Eim Lögð fram drög að endurnýjun á samstarfssamningi við Eim. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram. 4. Brák Formaður SSNV og fulltrúi í fulltrúaráði Brákar gerði grein fyrir stöðu félagsins og hugsanlegri sameiningu við Leigufélagið Bríet. 5. Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra Erindi frá framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra lagt fram til kynningar. Stjórn þakkar fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. 6. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSH, 16. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 20. apríl 2026. Fundargerðin. Stjórn SSNE, 24. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SASS, 10. apríl 2026. Fundargerðin. Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 13. apríl 2026. Fundargerðin . Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 17. apríl 2026. Fundargerðin . Stafrænt ráð sveitarfélaga, 18. febrúar 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Fjármálaáætlun fyrir árin 2027 – 2031 . Mál nr. 577/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. maí 2026. Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun . Mál nr. S-79/2026. Umsagnarfrestur er til og með 30. júní 2026. Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. 7. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11.35. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
24. mars 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 24. mars 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Skagaströnd. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Íslandsstofa Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir Byggðagleraugu SSNV Ársreikningur SSNV Ársþing SSNV Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn Ársskýrsla SSNV Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra Ályktanir ársþings SSNV Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir b) Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Íslandsstofa Arnar Guðmundsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, kom til fundar á Teams og kynnti verkefni á vegum Íslandsstofu þar sem unnið er að því að greina þær virðiskeðjur og fjárfestingartækifæri sem Ísland hefur raunhæfa samkeppnisstöðu í til framtíðar. Verkefnið felur í sér heildstæða kortlagningu á tækifærum til verðmætasköpunar og tengingu þeirra við mismunandi landshluta, innviði og styrkleika. Stjórn þakkar Arnari kærlega fyrir gagnlega og áhugaverða kynningu og góðar umræður um hvernig megi koma tækifærum Norðurlands vestra á framfæri í gegnum sameiginlega upplýsingagátt Íslandsstofu. Magnús Barðdal, verkefnastjóri SSNV, sat fundinn undir þessum lið. Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir á Norðurlandi vestra. Stjórn þakkar Markaðsstofu Norðurlands fyrir erindið. SSNV fór í átaksverkefni með skráningu gönguleiða árin 2020-2021 þar sem 94 leiðir voru skráðar, þ.e.a.s. grunnupplýsingar þeirra: GPS-punktar, myndir og texti, og eru þær nú hýstar á vefsíðunni WIKILOC sem væri ákjósanlegt að nýta. Framkvæmdastjóra falið að koma upplýsingum áleiðis til Markaðsstofunnar. Byggðagleraugu SSNV Stjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis, stofnunar eða fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar. Tillögur að handhafa Byggðagleraugnanna 2026 lagðar fyrir stjórn. Stjórn samþykkir tillögu að handhafa Byggðagleraugnanna og felur framkvæmdastjóra að hafa samband við viðkomandi í samræmi við umræður. Handhafi Byggðagleraugnanna verður tilkynntur formlega á ársþingi SSNV, miðvikudaginn 8. apríl, á Hótel Laugarbakka. Ársreikningur SSNV Helgi Níelsson, endurskoðandi hjá KPMG kom til fundar við stjórn og fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2025. Stjórn þakkar Helga fyrir greinargóða yfirferð á ársreikningnum. Stjórn samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu ársþings. Matthías Rúnarsson, aðalbókari samtakanna, sat fundinn undir þessum lið. Ársþing SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir drög að dagskrá fyrir ársþing SSNV. Stjórn þakkar fyrir yfirferðina og samþykkir framlagða dagskrá með áorðnum breytingum sem fram komu á fundinum. Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu. Lagt fram til kynningar. Ársskýrsla SSNV Ársskýrsla SSNV fyrir árið 2025 lögð fram til kynningar fyrir stjórn. Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa Lagt fram til kynningar erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa í kraganum. Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra veita árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni sem fram hafa farið á Norðurlandi vestra árið áður. Viðurkenningar eru veittar í tveimur flokkum: a) Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar b) Verkefni á sviði menningar Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum. Verkefnin einskorðast við að hafa fengið styrk úr uppbyggingarsjóði SSNV. Tillögur um framúrskarandi verkefni lagðar fyrir stjórn. Stjórn samþykkir framlagða tillögu að framúrskarandi verkefnum. Verkefnin verða kynnt á miðlum SSNV og fá viðurkenningu í samræmi við reglur fyrir framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra. Ályktanir ársþings SSNV Lagðar fram tillögur að ályktunum fyrir ársþing SSNV 2026 sem bárust frá Húnabyggð. Umræður stjórnar um önnur aðkallandi málefni til að leggja fyrir ársþing. Stjórn þakkar Húnabyggð fyrir þær tillögur sem bárust. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að ályktun um stöðu landshlutans. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSH, 16. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 2. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSNE, 5. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 20. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SASS, 6. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSS, 11. Mars 2026. Fundargerðin. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 27. janúar 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Mál nr. S-56/2026. Umsagnarfrestur er til og með 26. mars 2026. Tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mál nr. 516/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. apríl 2026. Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.26. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
24. febrúar 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 24. febrúar 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9.00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Áhersluverkefni 2026 Afgreiðslur Áhersluverkefni 2026 Stjórn SSNV auglýsti eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2026. Átta tillögur bárust. Um er að ræða 35 milljónir króna sem koma í hlut Norðurlands vestra til úthlutunar vegna viðauka við Sóknaráætlun frá fyrir árið 2026. Stjórn samþykkir eftirfarandi verkefni: 2025-13 TextílLab á Blönduósi 2025-15 Fab-Lab smiðjur á Norðurlandi vestra 2026-01 Bæjarhátíðir 2026-02 Hjartað í Húnaþingi 2026-03 Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall 2026-04 Fiðringur á Norðurlandi 2026-05 Rekstur rannsóknainnviða - TextílLab 2026-06 Hafnarhúsið Gestamiðstöð Framkvæmdastjóra falið að senda tillögur að áhersluverkefnum til stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál til samþykktar. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 9.45. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
19. febrúar 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Fimmtudaginn 19. febrúar 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Blönduósi. Hófst fundurinn kl. 12:30. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Línustæði, eignarréttur og endurgjald Áhersluverkefni 2026 Kveikjan – framhald á umræðum Framlögð mál til kynningar Fundargerðir Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Línustæði, eignarréttur og endurgjald Lögð fram til kynningar skýrslan “Línustæði, eignarréttur og endurgjald” sem Torfi Jóhannesson vann fyrir SSNV og SSV. Í samantekt Torfa er leitast við að varpa ljósi á þær leiðir sem nágrannalönd Íslands hafa farið við að greiða landeigendum fyrir notkun lands undir línustæði. Horft er til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, þar sem lagaumhverfi er sambærilegt og aðgengilegt. Jafnframt er markmiðið að ræða hvernig nýta megi þessa reynslu til að móta skýrari, réttlátari og nútímalegri umgjörð um slíkar greiðslur hér á landi. Framkvæmdastjóra falið að undirbúa kynningu á skýrslunni í samstarfi við SSV fyrir sveitarfélög á starfssvæðunum. Áhersluverkefni 2026 Framkvæmdastjóri fer yfir stöðu á áhersluverkefnum sóknaráætlunar fyrir árið 2026. Flest áhersluverkefnin voru samþykkt til tveggja ára, 2025-2026, og hafa hlotið samþykki stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að verkefnalýsingu vegna eftirfarandi verkefna: 2025-13 TextílLab á Blönduósi 2025-15 Fab-Lab smiðjur á Norðurlandi vestra 2026-01 Bæjarhátíðir Kveikjan – framhald á umræðum Framhald á umræðum frá 135. fundi stjórnar SSNV. Guðlaugur Skúlason, starfsmaður SSNV, kemur til fundar á Teams og fer yfir nánari upplýsingar um verkefnið Kveikjuna og stöðu þess. Stjórn samþykkir að taka ekki þátt í verkefninu á árinu 2026. Framkvæmdastjóra falið að koma bókun áfram á hlutaðeigandi aðila. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSH, 2. febrúar 2026. Fundargerðin. Stýrihópur Stjórnarráðs um byggðamál, 5. janúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSNE, 5. febrúar 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Grænbók um byggðamál. Mál nr. S-22/2025. Umsagnarfrestur er til og með 2. mars 2026. Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Mál nr. S-31/2026. Umsagnarfrestur er til og með 20. febrúar 2026. Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Grænbók um byggðamál og drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14.53. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Show More