5. nóvember 2026

Sérfræðingalisti á sviði þróunarsamvinnu - Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið sendir reglulega sérfræðinga til að sinna tímabundnum verkefnum á vettvangi á sviði þróunarsamvinnu. Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á starfsstöðvum ráðuneytisins í Afríku.

Samkvæmt lögum nr. 121/2008 um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands er utanríkisráðuneytinu heimilt að ráða starfsmenn til tímabundinna starfa við afmörkuð verkefni í þróunarsamvinnu erlendis. Ekki er um fastráðningu að ræða og hámarkslengd ráðningar eru fimm ár.

Með þessari auglýsingu er áhugasömum boðið að skrá sig á sérfræðingalista á sviði þróunarsamvinnu. Áréttað er að skráning þessi felur ekki í sér skuldbindingu til ráðningar, hvorki af hálfu utanríkisráðuneytisins né þeirra einstaklinga sem lýst hafa áhuga á að sinna tímabundnum verkefnum á vegum ráðuneytisins. Ráðuneytið metur í hverju tilviki fyrir sig hvaða þekking, kunnátta eða reynsla kemur að mestum notum við ráðningar í einstök verkefni og áskilur sér rétt til að vera ekki bundið af framangreindri skrá.


Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á starfsstöðvum ráðuneytisins í Afríku.


Hæfniskröfur

  • Haldgóð menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði þróunarsamvinnu, verkefnastjórnunar, fjölmiðlunar, hagfræði, verkfræði, stjórnmálafræði eða mannfræði.
  • Reynsla af störfum á sviði þróunarsamvinnu er skilyrði. Reynsla af störfum á vettvangi í þróunarríkjum er kostur.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og gott menningarlæsi. Geta til að aðlagast krefjandi aðstæðum erlendis.

Viðkomandi þarf að vera íslenskur ríkisborgari, vera með hreint sakavottorð og fullnægja skilyrðum um öryggisvottun hjá Ríkislögreglustjóra sbr. reglur nr. 959/2012.


Frekari upplýsingar um starfið

Skráning fer fram á eftirfarandi hlekk og með henni skal fylgja kynningarbréf að hámarki 1 bls. og ferilskrá að hámarki 1 bls.


Launakjör

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.


Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2027.

Sótt er um hér.

Nánari upplýsingar veitir Pálína Björk Matthíasdóttir (throunarsamvinna@utn.is).