Lán og styrkir

Lán og styrkir

Umhverfi styrkja og stuðningsúrræða fyrir einstaklinga og fyrirtæki er síbreytilegt. Atvinnuráðgjafar SSNV aðstoða við mótun verkefna og gerð umsókna, og þér er velkomið að hafa samband.

SSNV veitir styrki úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra einu sinni á ári, til menningarverkefna og verkefna á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.

Yfirlit yfir sjóði og styrki

Uppfærð yfirlit yfir sjóði, styrki og umsóknarfresti er að finna á Skapa.is og Styrkjatorgi Ísland.is.

Helstu stofnanir


Byggðastofnun – lán og styrkir til atvinnurekstrar og nýsköpunar á landsbyggðinni.

Ferðamálastofa – upplýsingar og stuðningur fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.

Íslandsstofa – stuðningur við útflutning og markaðssetningu erlendis.

Umhverfis- og orkustofnun – styrkir til orkuskipta og loftslagsverkefna, m.a. úr Loftslags- og orkusjóði.

Rannís – rekur fjölda samkeppnissjóða, þar á meðal Tækniþróunarsjóð.