5. nóvember 2026

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd.


Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga annast afgreiðslu á umsóknum um atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Meðal verkefna skrifstofunnar er að taka ákvarðanir um réttindi einstaklinga til atvinnuleysisbóta, greiða bætur og annast eftirlit. Ásamt því að sjá um innheimtur á ofgreiddum atvinnuleysisbótum.


Sérfræðingur mun sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna, eftirliti með greiðslum atvinnuleysisbóta, tekur þátt í þróun verkferla og öðrum verkefnum á verkefnasviði skrifstofunnar, eftir því sem við á. Starfið kallar á samskipti við önnur svið stofnunarinnar og sérfræðiaðstoð við þjónustuþega hennar.

Starfstöð sérfræðings er á Skagaströnd.


Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.

Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Helstu verkefni og ábyrgð

·        Upplýsingagjöf og úrlausn mála í tengslum við greiðslur, viðurlög og bótarétt. 

·        Afgreiðsla á málum er varða eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta. 

·        Samskipti og sérfræðiaðstoð við önnur svið stofnunarinnar og þjónustuþega hennar. 

·        Margvísleg skrifstofustörf, símsvörun og önnur tilfallandi verkefni. 


Menntunar- og hæfniskröfur

·        Háskólamenntun sem nýtist í starfi.     

·        Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.     

·        Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.   

·        Góð íslensku- og enskukunnátta.

·        Góð tölvukunnátta. 

·        Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og opinberri stjórnsýslu telst kostur. 


Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.


Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðunin um ráðningu hefur verið tekin. Starfshlutfall er 100 % og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Sótt er um hér.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veita Davíð Birkir Tryggvason deildarstjóri eftirlits- og innheimtudeildar (david.b.tryggvason@vmst.is) og Hallveig Ragnarsdóttir mannauðsstjóri (mannaudssvid@vmst.is) eða í síma 515-4800.