5. nóvember 2026

Sérfræðingur í geðlækningum - Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í geðlækningum. Um er að ræða 25% - 50% starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi.

Unnið er í nánu samstarfi við þverfaglegt geðheilsuteymi. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í kennslu annarra heilbrigðisstétta og handleiðslu sérnámslækna, með sveigjanlegu starfshlutfalli (25-50%) með möguleika á staðvinnu og fjarvinnu.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (<www.hvest.is>).

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks.


Starfshlutfall er 25-50%.

Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026.

Sótt er um hér.