5. nóvember 2026

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála - SSNV

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Orkusamfélag Steingerðar auglýsa eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og spennandi starf. Um er að ræða 100% starf sem skiptist til helminga milli byggðaþróunarverkefna SSNV og Evrópuverkefnisins DEPLOY-PED, sem Orkusamfélag Steingerðar tekur þátt í.

Starfið hentar einstaklingi sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun landshlutans og starfa í alþjóðlegu samstarfi. Hjá SSNV mun viðkomandi meðal annars sinna umhverfis- og loftslagstengdum verkefnum, sóknaráætlun Norðurlands vestra og eftirfylgni með stefnum sem varða landshlutann. Í DEPLOY-PED tekur hann þátt í evrópsku samstarfi á sviði orkumála og sjálfbærni, með samstarfsaðilum víða um Evrópu. Starfið býður því upp á einstakt tækifæri til að tengja staðbundna byggðaþróun við alþjóðlega þekkingu og tengslanet.

Um vinnustaðinn
SSNV eru samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þau gæta hagsmuna landshlutans og vinna að atvinnu- og byggðaþróun, nýsköpun og menningu. SSNV heldur einnig utan um sóknaráætlun landshlutans og Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Hjá samtökunum starfar samhentur hópur sjö starfsmanna.

Orkusamfélag Steingerðar er samstarfsvettvangur kúabænda í Húnaþingi vestra sem vinna að uppbyggingu lífgasframleiðslu í héraði, þar sem mykju er breytt í metan og áburð. Félagið vinnur íslenska sýnisverkefnið í DEPLOY-PED, Evrópuverkefni styrktu af Horizon Europe, sem miðar að því að þróa orkujákvæð héruð sem framleiða meiri endurnýjanlega orku en þau nota.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi starf með raunveruleg áhrif á framtíð landshlutans
  • Tækifæri til að byggja upp tengslanet, innanlands og á evrópskum vettvangi
  • 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma

Starfsstöð er á Hvammstanga. Starfinu fylgja ferðalög, bæði innan landshlutans og erlendis.

Laun fara eftir kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags innan BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, í síma 866 5390 eða á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is.


Sótt er um hér.