Þing SSNV

Um þing SSNV

Þing SSNV fara með æðsta vald í málefnum samtakanna. Öll löglega boðuð þing hafa sama umboð til umfjöllunar og ákvarðana. Þingin eru þrenns konar:

  • Ársþing er haldið að vori, fyrir lok apríl ár hvert. Þar eru m.a. lögð fram skýrsla stjórnar, ársreikningur og tillaga um laun og þóknun.
  • Haustþing er haldið í október ár hvert. Þar eru lögð fram fjárhags- og starfsáætlun fyrir komandi ár og ályktanir um hagsmunamál sveitarfélaganna.
  • Aukaársþing er haldið að afloknum sveitarstjórnarkosningum, eigi síðar en 15. júlí. Þar er kosin ný stjórn.

Á þingum SSNV eiga sæti kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna. Þingin eru opin til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV. Alþingismenn Norðvesturkjördæmis hafa rétt til setu með heimild til að ávarpa þingið. Nánar er kveðið á um starfshætti þinga í Samþykktum og þingsköpum SSNV.


Síðasta þing

10. haustþing SSNV – fimmtudaginn 1. október 2026, Hótel Laugarbakka

Næsta reglulega þing er 35. ársþing SSNV vorið 2027.


Ársþing

34. ársþing – 8. apríl 2026, Hótel Laugarbakka

33. ársþing – 9. apríl 2025, Grána á Sauðárkróki


Haustþing

10. haustþing – 1. október 2026, Hótel Laugarbakka


Aukaársþing

Gögn aukaársþinga verða birt hér.


Gögn eldri þinga bætast við á næstunni.