Hagsmunagæsla og umsagnir
Umsagnir og bókanir stjórnar SSNV
Eitt af hlutverkum SSNV er að gæta hagsmuna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Stjórn SSNV sendir reglulega umsagnir um þingmál og mál í samráðsgátt stjórnvalda og bókar um mál sem varða landshlutann.
Hér má nálgast allar umsagnir og bókanir stjórnar, nýjustu fyrst.
Sveitarstjórnarlög (heildarendurskoðun)
Fagnar skýrara hlutverki landshlutasamtaka en gerir athugasemdir við fjármögnun og mat á áhrifum.
Ýmis lög vegna fjárlaga 2027
Varar við lækkun endurgreiðslu VSK af íbúðarhúsnæði og hækkun kílómetragjalds.
Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna
Fagnar stefnunni en kallar eftir kostnaðarmati og aðgerðum vegna ferðakostnaðar barna.
Farsæld barna – stefna og framkvæmdaáætlun til 2030
Kallar eftir fjármögnun svæðisbundinna farsældarráða eftir 2027.
Stórþörungarækt í sjó
Leggur til að sveitarfélög verði skilgreind sem hagsmunaaðilar og höfð með í samráði.
Grænbók um fjarskipti og netöryggi (efnistök)
Vill að grænbókin fjalli sérstaklega um farnetsþekju, fjarskiptaöryggi og þarfir landsbyggðar.
Hvítbók um byggðamál
Gagnrýnir minnkandi hlutverk landshlutasamtaka í framkvæmd byggðaáætlunar.
Stefna um uppbyggingu flutningskerfis raforku
Krefst þess að Norðurland vestra verði forgangssvæði í uppbyggingu flutningskerfisins.
Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits
Gagnrýnir óvissu um framkvæmd, verkaskiptingu og fjármögnun nýs fyrirkomulags.
Sviðslistastefna 2026–2030
Vill skýrari landsbyggðarsjónarmið og fjármögnun aðgerða í sviðslistastefnu.
Fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum
Vill tryggja áframhaldandi rekstur lögreglustöðva á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga.
Fjármálaáætlun 2027–2031
Vill varanleg framlög til sóknaráætlana og atvinnuráðgjafar og áframhald Flugþróunarsjóðs.
Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
Styður markmiðin en leggur áherslu á eignarrétt landeigenda og skipulagsvald sveitarfélaga.
Grænbók um byggðamál
Svör við spurningum grænbókar með áherslu á stöðu og þarfir Norðurlands vestra.
Einföldun regluverks – eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum (frumvarp)
Lýsir verulegum áhyggjum af því að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lögð niður.
Opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun
Leggur til matsviðmið sem tryggja verkefnum á landsbyggðinni sanngjarnan aðgang að styrkjum.
Samgönguáætlun 2026–2040 og aðgerðaáætlun 2026–2030
Leggur áherslu á fækkun malarvega, skólaakstur og öryggi barna við forgangsröðun.
Jöfnun atkvæðavægis – breyting á kosningalögum
Varar við að jöfnun atkvæðavægis dragi úr pólitísku vægi landsbyggðarinnar.
Húsnæðismál (hlutdeildarlán)
Bendir á að aðeins tvö hlutdeildarlán af 1.129 hafi farið á Norðurland vestra og leggur til breyttar reglur.
Atvinnustefna Íslands – vaxtarplan til 2035
Tekur jákvætt í stefnuna en vill aukna áherslu á landbúnað og innviði landsbyggðar.
Landsbyggðarmat í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda
Styður að landsbyggðarmat verði lögbundið og býður fram staðbundna þekkingu við innleiðingu.
Varnir gegn mengun hafs og stranda (móttaka úrgangs í höfnum)
Tekur undir umsögn Hafnasambands Íslands og kallar eftir skýrri verkaskiptingu hafna og sveitarfélaga í úrgangsmálum.
Opinberir háskólar (háskólasamstæða)
Fagnar háskólasamstæðu HÍ og Háskólans á Hólum og kallar eftir fjármagni til uppbyggingar.
Veiðistjórn grásleppu (veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands)
Styður endurupptöku leyfiskerfis í stað kvótasetningar á grásleppu.
Kílómetragjald á ökutæki
Varar við áhrifum kílómetragjalds á þungaflutninga og vöruverð á landsbyggðinni.
Breyting á búvörulögum (framleiðendafélög)
Lýsir áhyggjum af takmörkunum á samstarfi afurðastöðva og áhrifum á landbúnað.
Einföldun regluverks og skilvirkni eftirlits (áform)
Vill að heilbrigðiseftirlit starfi áfram á svæðisbundnum grunni undir samræmdri yfirstjórn.
Tekjustofnar sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)
Fagnar áformum um að afnema undanþágu rafveitna frá fasteignamati.
Fjármálaáætlun 2026–2030
Leggur áherslu á að fjármálaáætlun taki mið af byggðasjónarmiðum, m.a. í samgöngum og fjármögnun sveitarfélaga.
Embætti sýslumanns
Vill að lögbundið aðsetur sýslumanns á landsbyggðinni verði aftur fært inn í frumvarpið.