Fréttir

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
4. nóvember 2026
Stjórn og starfsfólk Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) komu saman á vinnufundi í Kvennaskólanum á Blönduósi 3. nóvember. Tilgangurinn var að fara yfir starfsemi samtakanna og móta áherslur í starfi þeirra næstu árin. Yfirferð á verkefnum og tíma Fyrri hluti dagsins fór í yfirferð starfsfólks á verkefnum sínum. Þar var meðal annars skoðað hvernig tíminn skiptist milli ólíkra verkefna samtakanna. SSNV sinna fjölbreyttum verkefnum fyrir landshlutann, svo sem hagsmunagæslu, atvinnu- og byggðaþróun, umsjón með sóknaráætlun og Uppbyggingarsjóði, menningarmálum og farsæld barna. Yfirsýn yfir hvert tíminn fer er því nauðsynleg þegar forgangsraða þarf. Áherslur til næstu ára Í seinni hlutanum vann stjórn að áherslum fyrir starf samtakanna næstu fjögur árin. Horft var til markmiða sóknaráætlunar Norðurlands vestra, hagsmunamála landshlutans og atvinnuráðgjafar samkvæmt samningi SSNV við Byggðastofnun. „Það skiptir máli að stjórn og starfsfólk setjist niður saman og fari yfir það hvernig við nýtum krafta samtakanna sem best í þágu landshlutans,“ segir Magnús Magnússon, formaður stjórnar SSNV. „Dagurinn gaf okkur góða mynd af umfangi starfsins og skýran grunn til að byggja á næstu árin.“ Næstu skref Niðurstöður vinnudagsins verða lagðar fyrir stjórn SSNV til staðfestingar á næsta stjórnarfundi. Að því loknu mótar teymi SSNV framkvæmdaáætlun á grunni þeirra.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
30. október 2026
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Orkusamfélag Steingerðar auglýsa eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og spennandi starf. Um er að ræða 100% starf sem skiptist til helminga milli byggðaþróunarverkefna SSNV og Evrópuverkefnisins DEPLOY-PED, sem Orkusamfélag Steingerðar tekur þátt í. Starfið er tilvalið fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun landshlutans og starfa í alþjóðlegu samstarfi. Ráðið er til fjögurra ára og SSNV er vinnuveitandi. Helstu verkefni Fyrir SSNV Umsjón með umhverfis- og loftslagstengdum verkefnum í samstarfi við sveitarfélög á Norðurlandi vestra Utanumhald og eftirfylgni með sóknaráætlun Norðurlands vestra Eftirfylgni með byggðaáætlun og öðrum opinberum stefnum sem varða landshlutann og starf SSNV Ráðgjöf við sveitarfélög, fyrirtæki og frumkvöðla eftir því sem við á Þátttaka í öðrum verkefnum SSNV á sviði byggða- og atvinnuþróunar Fyrir DEPLOY-PED Verkefnastjórn og framkvæmd verkþátta Orkusamfélags Steingerðar í DEPLOY-PED Samskipti og samstarf við evrópska samstarfsaðila Skýrslugjöf, miðlun og kynning á niðurstöðum verkefnisins Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf sem nýtist í starfi Reynsla af verkefnastjórnun Þekking eða reynsla af byggðaþróun, stjórnsýslu eða starfsemi sveitarfélaga er kostur Þekking eða áhugi á orkumálum og orkuskiptum er kostur Reynsla af alþjóðlegum eða evrópskum samstarfsverkefnum er kostur Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi hagsaðila Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Í boði Fjölbreytt og lifandi starf þar sem starfsmaður tekur þátt í að móta áherslur Alþjóðlegt samstarf í evrópsku verkefni Góður starfsandi í litlum og samhentum hópi Starfsstöð er á Hvammstanga Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir og upplýsingar Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu og hæfni til að sinna því. Sótt er um starfið á Alfred.is . Starfið hentar öllum kynjum. Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg, framkvæmdastjóri SSNV, í síma 866 5390 eða á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is . Um SSNV. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eru hagsmunasamtök sveitarfélaga í landshlutanum. Samtökin vinna að atvinnu- og byggðaþróun, nýsköpun og hagsmunagæslu og halda utan um sóknaráætlun landshlutans og Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Um Orkusamfélag Steingerðar. Orkusamfélag Steingerðar er samstarf 34 kúabænda í Húnaþingi vestra sem vinna að því að kanna hvort hagkvæmt sé að framleiða lífgas úr kúamykju. Hugmyndin er að breyta lífrænum úrgangi í metan sem nýtist sem eldsneyti og í afgangsefni sem má nýta sem áburð. Markmiðið er að bæta nýtingu auðlinda á búunum, draga úr innflutningi á dísilolíu og tilbúnum áburði og styrkja rekstrargrundvöll landbúnaðarins.

Eftir Guðlaugur Skúlason
•
26. október 2026
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra lokaði í síðustu viku fyrir styrkumsóknir vegna verkefna ársins 2027. Alls bárust 104 umsóknir og var samtals sótt um 200.659.847 krónur . Umsóknirnar skiptast þannig að 57 umsóknir eru vegna menningar- og samfélagsverkefna, 10 umsóknir eru um stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar og 37 umsóknir vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Fram undan er yfirferð og mat á umsóknum og undirbúningur úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutunarnefnd mun meta umsóknirnar út frá matsblaði og úthlutunarreglum sjóðsins og markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra . Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og ráðast styrkveitingar af mati á verkefnum og því fjármagni sem er til ráðstöfunar. Á liðnum árum hefur stuðningur sjóðsins átt þátt í að koma fjölbreyttum verkefnum á legg og efla atvinnulíf, nýsköpun og menningarstarf á svæðinu. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og stærðargráðu en eiga það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu og þróun í landshlutanum. SSNV þakkar öllum umsækjendum fyrir umsóknirnar og þann áhuga sem þeir sýna á að skapa ný tækifæri á Norðurlandi vestra. Nánar verður greint frá niðurstöðum úthlutunar þegar þær liggja fyrir.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
22. október 2026
Vilhelm Ívarsson Jensen, verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar hjá SSNV. Vilhelm Ívarsson Jensen hóf störf hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) miðvikudaginn 21. október sem verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar. Hann hefur aðsetur á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki. Með ráðningu hans eru starfsmenn SSNV nú sjö. Fjárfestingar og stuðningur við atvinnulíf Vilhelm mun leiða fjárfestingaverkefni landshlutans. Í því felst að kortleggja fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra, vinna að framgangi þeirra og kynna þau fyrir innlendum og erlendum fjárfestum. Það gerir hann í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og aðra hagaðila. Þá veitir hann frumkvöðlum og fyrirtækjum atvinnuráðgjöf, meðal annars um stofnun og rekstur fyrirtækja, gerð viðskiptaáætlana, fjármögnun og þróun viðskiptahugmynda. Reynsla úr fjármálum og frumkvöðlastarfi Vilhelm er viðskiptafræðingur með BS-próf frá Háskóla Íslands. Hann hefur fjölbreytta reynslu af fjármálum, rekstri, fjárfestingartengdum verkefnum, verkefnastjórnun og viðskiptaþróun innan sprota- og vaxtarfyrirtækja á Íslandi og í Kanada. Hann hefur starfað við fjármála- og viðskiptagreiningu hjá DRW og CWP Energy í Kanada og var fjármálastjóri hjá Guide to Iceland. Reynsla hans nær meðal annars til fjárhags- og rekstrargreiningar, áætlanagerðar og innleiðingar breytinga, auk upplýsingagjafar til stjórnar, stjórnenda, fjárfesta og annarra hagaðila. Hann hefur einnig tekið þátt í viðskiptahraðli og frumkvöðlastarfi. Tökum vel á móti honum Á næstunni verður Vilhelm í sambandi við starfandi fyrirtæki á svæðinu og við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. Við biðjum fólk að taka vel á móti honum. Fyrirtæki og frumkvöðlar sem vilja ræða hugmyndir eða verkefni geta einnig haft samband við hann beint á netfangið vilhelm@ssnv.is . Við bjóðum Vilhelm velkominn til starfa.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
15. október 2026
Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl., samþykkti ályktun um samgöngu- og innviðamál. Þingið fagnar nýrri samgönguáætlun en bendir á að fjármagn til vega, fjarskipta, raforkuflutninga og hafna í landshlutanum hafi lengi verið langt undir þörf. Þingið krefst þess að fjármögnun innviða á Norðurlandi vestra endurspegli raunverulega þörf landshlutans. Samgönguáætlun fagnað en viðhald vega situr eftir Haustþingið fagnar samþykkt samgönguáætlunar fyrir árin 2026–2040 og fimm ára aðgerðaáætlunar. Þingið fagnar því einnig að Fljótagöng á norðanverðum Tröllaskaga eru sett í forgang sem næsta stóra jarðgangaframkvæmd. Í ályktuninni er þó minnt á að fjármagn til viðhalds og uppbyggingar tengi- og stofnvega á Norðurlandi vestra hefur um árabil verið langt frá því sem þarf. Landshlutinn er enn með eitt hæsta hlutfall malarvega á landinu og er því einna viðkvæmastur fyrir niðurskurði í viðhaldi. Þingið leggur áherslu á að vetrarþjónusta og snjómokstur séu ekki síður mikilvæg en nýframkvæmdir. Greið vetrarumferð ræður úrslitum um öryggi íbúa, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og samkeppnishæfni atvinnulífs. Þá mega endurbætur á tengivegum, sem lengi hafa beðið á síðari stigum samgönguáætlana, ekki lenda aftast í forgangsröðun þegar fjármagni er úthlutað. Sambandsleysi eftir að 2G og 3G var lokað Slökkt hefur verið á 2G- og 3G-farsímakerfum landsins og haustþingið telur brýnt að tryggja fullnægjandi farsímasamband til sveita á Norðurlandi vestra. Sendar sem áður náðu til afskekktra svæða þjóna nú færri stöðum. Uppbygging 4G- og 5G-kerfa hefur heldur ekki alls staðar fylgt sömu landfræðilegu dreifingu og eldri kerfin. Reynslan sýnir að umskiptin hafa á köflum skilið íbúa og vegfarendur eftir sambandslausa þar sem áður var samband. Í ályktuninni er bent á að þetta sé alvarlegt öryggismál fyrir íbúa og ferðafólk, ekki síst á fjallvegum og í dreifbýli þar sem fjarskiptasamband getur ráðið úrslitum í neyðartilvikum. Raforkuflutningar hamla atvinnuuppbyggingu Norðurland vestra hefur um árabil búið við takmarkaða flutnings- og afhendingargetu raforku. Það hefur hamlað atvinnuuppbyggingu, fjárfestingum og orkuskiptum og tækifæri hafa þegar runnið landshlutanum úr greipum af þeim sökum. Núverandi meginflutningslínur í landshlutanum eru þegar fulllestaðar. Haustþingið ítrekar kröfu stjórnar SSNV um að Norðurland vestra verði skilgreint sem forgangssvæði við uppbyggingu flutningskerfis raforku. Þingið vill að ráðist verði hið fyrsta í Blöndulínu 3, Holtavörðuheiðarlínu 1 og 3 og endurnýjun Sauðárkrókslínu 1. Markmið stjórnvalda er að afhendingaröryggi í landshlutakerfinu verði ekki tryggt fyrr en árið 2045. Að mati þingsins er það allt of fjarlægt og samræmist hvorki þörfum atvinnulífsins né markmiðum um orkuskipti og jákvæða byggðaþróun. Lækkun framlaga til hafnarframkvæmda mótmælt Haustþingið mótmælir fyrirhugaðri lækkun framlaga ríkisins til hafnarframkvæmda. Hafnir gegna lykilhlutverki fyrir sjávarútveg, ferðaþjónustu og vöruflutninga í sjávarbyggðum Norðurlands vestra. Fámenn sveitarfélög hafa takmarkað bolmagn til að standa undir hafnarframkvæmdum þegar framlög ríkisins dragast saman. Ef enn frekar verður dregið úr fjármagni er hætt við að nauðsynlegu viðhaldi verði frestað. Til lengri tíma leiðir það til hærri kostnaðar, aukinnar áhættu og skertrar samkeppnishæfni sjávarbyggða á svæðinu. Krafa um að þróuninni verði snúið við Haustþing SSNV krefst þess að fjármagn til samgöngubóta, fjarskipta og hafnarframkvæmda á Norðurlandi vestra endurspegli raunverulega þörf landshlutans. Áhersla verði lögð á öryggi vegfarenda, vetrarþjónustu, fullnægjandi 4G/5G-dekkun og viðhald og uppbyggingu hafna. Í ályktuninni segir að innviðir séu forsenda þess að landshlutar sitji við sama borð þegar kemur að búsetuskilyrðum, atvinnuuppbyggingu og samkeppnishæfni. Verði samgöngur, fjarskipti, raforka og hafnir áfram afgangsstærð í fjármögnun er hætt við að Norðurland vestra dragist enn frekar aftur úr. Haustþingið krefst þess að þessu verði snúið við. Ályktuninni beint til tveggja ráðuneyta Ályktuninni er beint til innviðaráðuneytisins vegna samgöngu-, fjarskipta- og hafnarmála. Henni er einnig beint til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins vegna forgangsröðunar og hraða uppbyggingar flutningskerfis raforku á Norðurlandi vestra. Ályktunina í heild má lesa hér.

Eftir Berglind SSNV
•
14. október 2026
Eftir hressilegan undirbúning er komið að því! Skúnaskrall – Öll saman, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, fer að hefjast, en hátíðin mun standa yfir frá 21. október til 4. nóvember. Að sögn Berglindar Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNV, hefur undirbúningurinn gengið vel og verið gaman og gefandi að finna fyrir miklum áhuga á viðburðum hátíðarinnar. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar. Meðal viðburða má nefna: Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur. Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur. Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig allra grunnskólanna sex. Á ballinu, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, munu DJ Sakki og Partývélin halda uppi stuðinu. Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum. Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu. Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunar- og sköpunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab, auk þess sem mikið verður um að vera á bókasöfnum svæðisins, svo nokkur dæmi séu tekin. Nánari upplýsingar munu birtast jafnt og þétt á skunaskrall.is . Rétt er að benda á að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana. Eru íbúar landshlutans hvattir til að fylgjast vel með og vera duglegir að nýta sér þá viðburði sem opnir eru öllum.

