14. október 2026
Skúnaskrall er að skella á!

Eftir hressilegan undirbúning er komið að því!
Skúnaskrall – Öll saman, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, fer að hefjast, en hátíðin mun standa yfir frá 21. október til 4. nóvember. Að sögn Berglindar Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNV, hefur undirbúningurinn gengið vel og verið gaman og gefandi að finna fyrir miklum áhuga á viðburðum hátíðarinnar.
Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.
Meðal viðburða má nefna:
- Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur.
- Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur.
- Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig. Ballið sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins fær DJ Sakka og Partývélina til að halda uppi stuðinu.
- Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum.
- Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu.
Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab, og mikið verður um að vera á bókasöfnum svæðisins svo nokkur dæmi séu tekin.
Nánari upplýsingar munu birtast jafnt og þétt á skunaskrall.is. Rétt er að benda á að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana.
Eru íbúar landshlutans hvattir til að fylgjast vel með og vera duglegir að nýta sér þá viðburði sem opnir eru öllum.