2. nóvember 2026
Nemendur í Grunnskólanum austan Vatna og Málæði
Nemendur í GaV komust áfram í Málæði þriðja árið í röð

Nú þegar Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall stendur sem hæst er gaman að segja frá því að ungmenni í Grunnskólanum austan Vatna komust áfram í Málæði þriðja árið í röð.
Þau Óskar Bjarni og Monika Rut, nemendur á unglingastigi skólans, sömdu textann Stjarnan mín skær við lag Braga Valdimars Skúlasonar. Nú hefur Bragi Valdimar fullklárað textann og Salka Sól sungið lagið í stúdíói. Lagið verður frumflutt á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember í þættinum Málæði. Nánari umfjöllun um verkefnið og texta ungmennana má finna á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Innilega til hamingju með árangurinn, bæði nemendur og kennarar Grunnskólans austan Vatna.