26. október 2026

104 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra lokaði í síðustu viku fyrir styrkumsóknir vegna verkefna ársins 2027. Alls bárust 104 umsóknir og var samtals sótt um 200.659.847 krónur.

Umsóknirnar skiptast þannig að 57 umsóknir eru vegna menningar- og samfélagsverkefna, 10 umsóknir eru um stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar og 37 umsóknir vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.


Fram undan er yfirferð og mat á umsóknum og undirbúningur úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutunarnefnd mun meta umsóknirnar út frá matsblaði og úthlutunarreglum sjóðsins og markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og ráðast styrkveitingar af mati á verkefnum og því fjármagni sem er til ráðstöfunar.



Á liðnum árum hefur stuðningur sjóðsins átt þátt í að koma fjölbreyttum verkefnum á legg og efla atvinnulíf, nýsköpun og menningarstarf á svæðinu. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og stærðargráðu en eiga það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu og þróun í landshlutanum.

SSNV þakkar öllum umsækjendum fyrir umsóknirnar og þann áhuga sem þeir sýna á að skapa ný tækifæri á Norðurlandi vestra. Nánar verður greint frá niðurstöðum úthlutunar þegar þær liggja fyrir.