30. október 2026
Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Orkusamfélag Steingerðar auglýsa eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og spennandi starf. Um er að ræða 100% starf sem skiptist til helminga milli byggðaþróunarverkefna SSNV og Evrópuverkefnisins DEPLOY-PED, sem Orkusamfélag Steingerðar tekur þátt í.
Starfið er tilvalið fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun landshlutans og starfa í alþjóðlegu samstarfi. Ráðið er til fjögurra ára og SSNV er vinnuveitandi.
Helstu verkefni
Fyrir SSNV
- Umsjón með umhverfis- og loftslagstengdum verkefnum í samstarfi við sveitarfélög á Norðurlandi vestra
- Utanumhald og eftirfylgni með sóknaráætlun Norðurlands vestra
- Eftirfylgni með byggðaáætlun og öðrum opinberum stefnum sem varða landshlutann og starf SSNV
- Ráðgjöf við sveitarfélög, fyrirtæki og frumkvöðla eftir því sem við á
- Þátttaka í öðrum verkefnum SSNV á sviði byggða- og atvinnuþróunar
Fyrir DEPLOY-PED
- Verkefnastjórn og framkvæmd verkþátta Orkusamfélags Steingerðar í DEPLOY-PED
- Samskipti og samstarf við evrópska samstarfsaðila
- Skýrslugjöf, miðlun og kynning á niðurstöðum verkefnisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Þekking eða reynsla af byggðaþróun, stjórnsýslu eða starfsemi sveitarfélaga er kostur
- Þekking eða áhugi á orkumálum og orkuskiptum er kostur
- Reynsla af alþjóðlegum eða evrópskum samstarfsverkefnum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi hagsaðila
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Í boði
- Fjölbreytt og lifandi starf þar sem starfsmaður tekur þátt í að móta áherslur
- Alþjóðlegt samstarf í evrópsku verkefni
- Góður starfsandi í litlum og samhentum hópi
- Starfsstöð er á Hvammstanga
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknir og upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu og hæfni til að sinna því. Sótt er um starfið á Alfred.is.
Starfið hentar öllum kynjum. Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg, framkvæmdastjóri SSNV, í síma 866 5390 eða á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is.
Um SSNV. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eru hagsmunasamtök sveitarfélaga í landshlutanum. Samtökin vinna að atvinnu- og byggðaþróun, nýsköpun og hagsmunagæslu og halda utan um sóknaráætlun landshlutans og Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra.
Um Orkusamfélag Steingerðar. Orkusamfélag Steingerðar er samstarf 34 kúabænda í Húnaþingi vestra sem vinna að því að kanna hvort hagkvæmt sé að framleiða lífgas úr kúamykju. Hugmyndin er að breyta lífrænum úrgangi í metan sem nýtist sem eldsneyti og í afgangsefni sem má nýta sem áburð. Markmiðið er að bæta nýtingu auðlinda á búunum, draga úr innflutningi á dísilolíu og tilbúnum áburði og styrkja rekstrargrundvöll landbúnaðarins.