Sögusetur Íslenska fjárhundsins opnað á Lýtingsstöðum í Skagafirði

Huldudals Hraundís - mynd frá Evelyn Ýr
Huldudals Hraundís - mynd frá Evelyn Ýr

Laugardaginn 24. maí var Sögusetur Íslenska fjárhundsins opnað á Lýtingsstöðum í Skagafirði við hátíðlega athöfn þar sem margir mættu til að fagna þessum mikilvæga áfanga.

Verkefnið hefur verið í þróun undanfarin tvö og hálft ár, þar sem unnin hefur verið umfangsmikil rannsóknar- og undirbúningsvinna með það að markmiði að varðveita sögu íslenska þjóðarhundsins og gera hana bæði aðgengilega og sýnilega almenningi.

Vonir standa til þess að sýningin muni vekja athygli og áhuga heimamanna jafnt sem erlendra ferðamanna á þeim einstaka menningararfi sem íslenski fjárhundurinn sannarlega er.

Sögusetrið verður opið daglega yfir sumarið frá kl. 9 til 18, en einnig er hægt að heimsækja setrið eftir samkomulagi utan hefðbundins opnunartíma. Eigendur búa á staðnum og geta því tekið vel á móti gestum, jafnvel þegar heimsóknir eru óvæntar.

Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, en sjóðurinn styrkir verkefni sem m.a. stuðla að menningarlegri uppbyggingu og atvinnusköpun á svæðinu.

Við óskum Evelyn og fjölskyldu hjartanlega til hamingju með áfangann og hvetjum alla til að gera sér ferð á Lýtingsstaði.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu setursins: www.fjarhundur.is.