9. nóvember 2026
Vel heppnaður lokaviðburður Startup Landsins á Selfossi

Lokaviðburður Startup Landsins fór fram á Selfossi föstudaginn 6. nóvember og var hluti af dagskrá Uppsprettunnar.
Viðburðurinn var sannkölluð uppskeruhátíð þar sem teymin sem tekið hafa þátt í Startup Landinu stigu á svið og kynntu verkefni sín. Það var einstaklega gaman að sjá þann árangur og þróun sem hefur átt sér stað á meðan á hraðlinum stóð og óhætt er að segja að þátttakendur hafi staðið sig frábærlega.
Startup Landið hefur síðustu vikur verið vettvangur fyrir frumkvöðla víðs vegar að af landinu til að þróa hugmyndir sínar áfram, skerpa á verkefnum sínum, efla færni og byggja upp tengslanet. Fjölbreytileiki verkefnanna endurspeglar vel þann kraft, sköpun og frumkvöðlahugsun sem býr í landshlutunum.
Fjölbreytt verkefni hvaðanæva af landinu
Alls tóku 12 verkefni frá sjö landshlutum þátt og kynntu verkefni sín á lokaviðburðinum:
- Ullarkögglar (Suðurland)
Framleiðsla á lífrænum áburði úr íslenskri ull sem annars færi forgörðum, í anda hringrásarhagkerfisins.
Þátttakandi: Alice Sowa. - Korngrís Bjór (Suðurland)
Nýsköpun í bruggun þar sem stefnt er að framleiðslu á bjór eingöngu úr íslensku byggi.
Þátttakandi: Petrína Jónsdóttir. - Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes )
Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu.
Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir. - Byrjum / Fjarheilbrigðistorg (Vestfirðir)
Miðlægur stafrænn vettvangur sem sameinar fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu sérfræðinga til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar jafnt aðgengi að þjónustu.
Þátttakandi: Þóra Kristín Bergsdóttir. - Valkyrju Ævintýri (Vestfirðir)
Uppbygging ferðaþjónustu og upplifunar á Vestfjörðum allt árið um kring.
Þátttakandi: Jake Lampe. - Snigill – smár snigill, stórt prótein (Vesturland)
Sniglarækt sem opnar nýjar, sjálfbærar leiðir í matvæla- og próteinframleiðslu á Íslandi.
Þátttakandi: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir. - Sif's Hair Atelier (Vesturland)
Sérhæfðar og náttúrulegar hárlausnir í háum gæðaflokki sem efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi.
Þátttakandi: Laura Martin Merino. - Okkar norður ehf. (Norðurland vestra)
Markaðslausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nýtir stafræna miðlun til að efla sýnileika svæðisins.
Þátttakandi: Sigurjón Arthur Friðjónsson og Guðbjörg Bjarnasóttir - BlómAría (Norðurland vestra)
Nýsköpunarverkefni á sviði blómaræktar og hönnunar í heimabyggð.
Þátttakandi: Anna Sif Ingimarsdóttir. - Dálæti (Austurland)
Hönnun og framleiðsla á séríslenskum skartgripum og vörum sem vekja fortíðarþrá og kátínu.
Þátttakandi: Guðdís Jóhannadóttir. - Fjarðarhjól ehf. (Austurland )
Hjóla- og afþreyingarferðaþjónusta sem nýtir náttúru og landslag Austfjarða.
Þátttakandi: Árni Magnús Magnusson. - Syðra Holt ehf. (Norðurland eystra)
Lífrænt kaffihús, vinnustofa og framleiðslueldhús fyrir afurðir af býlinu í Svarfaðardal.
Þátttakandi: Alejandra Gabriela Soto Hernández. - AllergyID (Norðurland eystra)
Tæknilausn og smáforrit sem auðvelda fólki með fæðuóþol og ofnæmi að finna matvæli og þjónustu við hæfi.
Þátttakandi: Bjarni Þór Ævarsson.
Vegferðinni er rétt að byrja
Lokaviðburðurinn markaði lok formlegrar dagskrár Startup Landsins að þessu sinni, en um leið upphaf að næsta kafla hjá þátttakendum og verkefnum þeirra.
Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir samfylgdina, metnaðinn, hugrekkið og kraftinn sem þau hafa lagt í verkefnin sín. Það hefur verið einstaklega gefandi að fylgjast með hugmyndunum þróast og verkefnunum taka framförum.
Við hlökkum til að fylgjast áfram með þessum öflugu frumkvöðlum og sjá hvert næstu skref leiða þau. Hraðlinum lýkur, en vegferðinni er rétt að byrja.
Horfðu á kynningarnar
Upptaka frá lokaviðburðinum og kynningar þátttakenda eru aðgengilegar á YouTube:
https://www.youtube.com/watch?v=7_NhVtWPg4k