Matsjá

Í samstarfi við Samtök smáframleiðenda matvæla lögðu landshlutasamtökin og atvinnuþróunarfélög á öllu landinu inn umsókn í Matvælasjóðinn sem hlaut brautargengi. Verkefnið snýr að því að veita smáframleiðendum stuðning með því að sníða aðferðarfræði úr verkefninu Ratsjá að matarfrumkvöðlum. Afurð verkefnisins verður fræðsla fyrir smáframleiðendur til að styðja þá í að aukinni verðmætasköpun, til að styrkja stöðu þeirra, efla framleiðslu, auka sölutekjur og styðja við sjálfbærni í rekstri. Markmið stuðningskerfisins er að auka innsýn þátttakenda í rekstri og innviða fyrirtækis með það fyrir augum að finna leiðir til að auka hagkvæmni, bæta rekstur, auka fagmennsku og innleiða samfélagsábyrgð í fyrirtækin.

Smáframleiðendur matvæla fá greiningu á sínum rekstri og einkatíma með ráðgjöfum. Á svokölluðum heimafundum, sem starfsmenn landshlutasamtakanna koma til með að stýra, verður rekstur eða vara smáframleiðenda rýnt til gagns á jafningjagrundvelli. Smáframleiðendur fá jafnframt fyrirlestra og fræðslu sem tengjast starfsemi þeirra.
Lagt er upp með að um sé að ræða 14 vikna tímabil. Á því tímabili verða 7 fyrirlestrar og erindi og 7 heimafundir.

Verkefnið verður unnið í breiðu samstarfi Samtaka smáframleiðenda matvæla (SSFM) og landshlutasamtakanna/atvinnuþróunarfélaga. Með víðtæku samstarfi gefst tækifæri á að mynda sterkt tengslanet meðal smáframleiðenda matvæla.

 

Verkefnið verður nánar auglýst síðar þegar kemur að skráningum fyrir smáframleiðendur.