11. nóvember 2026

Verkefnin fylgja, fjármagnið ekki!

Ályktun haustþings SSNV um farsæld barna og málefni fatlaðs fólks

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október síðastliðinn, lýsti þungum áhyggjum af óvissu um framtíðarfjármögnun farsældarþjónustu í þágu barna. Haustþingið krefst þess að ríkið tryggi fullnægjandi fjármagn bæði til farsældarþjónustu og til þjónustu við fatlað fólk.

Með lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna fengu sveitarfélög aukna og lögbundna ábyrgð á stuðningi við börn og fjölskyldur, meðal annars með tengiliðum og snemmtækri íhlutun. Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa þegar lagt umtalsvert í uppbyggingu þjónustunnar, meðal annars með samstarfssamningi um Farsældarráð á svæðinu.


Rúmur milljarður skorinn niður

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi stendur til að skera niður rúman milljarð króna sem sveitarfélög höfðu gert ráð fyrir frá ríkinu til stuðnings börnum með stuðningsþarfir. Þá hefur nýleg skýrsla Ríkisendurskoðunar gagnrýnt harðlega ófullnægjandi undirbúning og óraunhæfar væntingar við innleiðingu laganna. Niðurstaðan er sú að sveitarfélögum er gert að veita lögbundna þjónustu án þess að tryggt sé að fjármagn fylgi.


Sama þróun í málaflokki fatlaðs fólks

Í ályktuninni er bent á að þetta sé ekki einsdæmi. Sambærileg þróun hafi átt sér stað í málaflokki fatlaðs fólks um árabil, þar sem umfang og kostnaður þjónustunnar hafi vaxið langt umfram framlög ríkisins. Á árunum 2016–2021 hækkuðu greiðslur til Skagafjarðar, leiðandi sveitarfélags í málaflokknum á Norðurlandi vestra, um 509%. Þar af jókst kostnaðurinn um 181% á einu ári, milli 2020 og 2021, meðal annars vegna styttingar vinnutíma vaktavinnufólks og áhrifa Covid-19 faraldursins á þjónustuþörf.

Í báðum tilvikum er um að ræða lögbundna velferðarþjónustu sem ríkið hefur falið sveitarfélögum að veita, án þess að fjármögnun hafi fylgt með fullnægjandi hætti. Afleiðingin er sú að fámenn sveitarfélög á Norðurlandi vestra sitja uppi með vaxandi fjárhagslega áhættu af verkefnum sem þau hafa takmörkuð áhrif á, hvorki á umfang né kostnað.


Kröfur haustþingsins

Haustþingið krefst þess að:

  • félags- og húsnæðismálaráðuneytið tryggi áframhaldandi og fullnægjandi fjármagn til farsældarþjónustu í þágu barna, þannig að sveitarfélögum sé ekki gert að veita lögbundna þjónustu án þess að kostnaði sé mætt,
  • ríkið tryggi að fjármagn fylgi að fullu þeim verkefnum í málaflokki fatlaðs fólks sem sveitarfélögum er gert að sinna, á grundvelli raunhæfrar kostnaðargreiningar,
  • sérstakt tillit verði tekið til þess aukna kostnaðar sem hlýst af fjarlægðum og fámenni í landshlutum eins og Norðurlandi vestra, í báðum málaflokkum.

Ályktuninni er beint til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.


Ályktunina í heild má lesa hér.