Fréttir

Eftir Berglind SSNV
•
14. október 2026
Eftir hressilegan undirbúning er komið að því! Skúnaskrall – Öll saman, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, fer að hefjast, en hátíðin mun standa yfir frá 21. október til 4. nóvember. Að sögn Berglindar Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNV, hefur undirbúningurinn gengið vel og verið gaman og gefandi að finna fyrir miklum áhuga á viðburðum hátíðarinnar. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar. Meðal viðburða má nefna: Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur. Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur. Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig allra grunnskólanna sex. Á ballinu, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, munu DJ Sakki og Partývélin halda uppi stuðinu. Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum. Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu. Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunar- og sköpunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab, auk þess sem mikið verður um að vera á bókasöfnum svæðisins, svo nokkur dæmi séu tekin. Nánari upplýsingar munu birtast jafnt og þétt á skunaskrall.is . Rétt er að benda á að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana. Eru íbúar landshlutans hvattir til að fylgjast vel með og vera duglegir að nýta sér þá viðburði sem opnir eru öllum.

Eftir Guðlaugur Skúlason
•
14. október 2026
Fjórtán fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu. Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi þann 6. nóvember. Breidd og hugvit um allt land Þátttakendur ársins endurspegla mikla fjölbreytni í íslenskri nýsköpun, allt frá sjálfbærri matvælaframleiðslu og heilsueflingu til tækni, ferðaþjónustu og annarra þjónustulausna. Eftirtalin verkefni taka þátt í Startup Landinu 2026: Ullarkögglar (Suðurland – SASS) Framleiðsla á lífrænum áburði úr íslenskri ull sem annars færi forgörðum, í anda hringrásarhagkerfisins. Þátttakandi: Alice Sowa. Korngrís Bjór (Suðurland – SASS) Nýsköpun í bruggun þar sem stefnt er að framleiðslu á bjór eingöngu úr íslensku byggi. Þátttakandi: Petrína Jónsdóttir. Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes – SSS) Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu. Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir. Kraftý Café (Suðurnes – SSS) Nýstárlegt kaffihús og upplifun sem efla samfélag og menningarlíf. Þátttakendur: Alexandra Ósk Laxdal og Inga Hrönn Kristjánsdóttir. Byrjum / Fjarheilbrigðistorg (Vestfirðir – VF) Miðlægur stafrænn vettvangur sem sameinar fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu sérfræðinga til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar jafnt aðgengi að þjónustu. Þátttakandi: Þóra Kristín Bergsdóttir. Valkyrju Ævintýri (Vestfirðir – VF) Uppbygging ferðaþjónustu og upplifunar á Vestfjörðum allt árið um kring. Þátttakandi: Jake Lampe. Snigill – smár snigill, stórt prótein (Vesturland – SSV) Sniglarækt sem opnar nýjar, sjálfbærar leiðir í matvæla- og próteinframleiðslu á Íslandi. Þátttakandi: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir. Sif's Hair Atelier (Vesturland – SSV) Sérhæfðar og náttúrulegar hárlausnir í háum gæðaflokki sem efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi. Þátttakandi: Laura Martin Merino. Okkar norður ehf. (Norðurland vestra – SSNV) Samstarfs- og markaðslíkan fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nýtir stafræna miðlun til að efla sýnileika svæðisins. Þátttakandi: Sigurjón Arthur Friðjónsson. BlómAría (Norðurland vestra – SSNV) Nýsköpunarverkefni á sviði blómaræktar og hönnunar í heimabyggð. Þátttakandi: Anna Sif Ingimarsdóttir. Dálæti (Austurland – Austurbrú) Hönnun og framleiðsla á séríslenskum skartgripum og vörum sem vekja fortíðarþrá og kátínu. Þátttakandi: Guðdís Jóhannadóttir. Fjarðarhjól ehf. (Austurland – Austurbrú) Hjóla- og afþreyingarferðaþjónusta sem nýtir náttúru og landslag Austfjarða. Þátttakandi: Árni Magnús Magnusson. Syðra Holt ehf. (Norðurland eystra – SSNE) Lífrænt kaffihús, vinnustofa og framleiðslueldhús fyrir afurðir af býlinu í Svarfaðardal. Þátttakandi: Alejandra Gabriela Soto Hernández. AllergyID (Norðurland eystra – SSNE) Tæknilausn og smáforrit sem auðvelda fólki með fæðuóþol og ofnæmi að finna matvæli og þjónustu við hæfi. Þátttakandi: Bjarni Þór Ævarsson. Efling landsbyggðarinnar Startup Landið hefur það að markmiði að efla tengslanet frumkvöðla og veita þeim aðgang að sérfræðiþekkingu og verkfærum til að byggja upp sjálfbæran rekstur. Með stuðningi við fjölbreyttar hugmyndir um allt land er lagður grunnur að fjölbreyttum störfum, aukinni verðmætasköpun og meiri byggðafestu. Myndatexti: Dagana 25. og 26. september komu þátttakendur, ráðgjafar og samstarfsaðilar Startup Landsins saman í Borgarnesi í tveggja daga vinnustofu. Megináhersla var lögð á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun á verkefnum þátttakenda. Myndatexti: Verkefnastjórar Startup Landið sem unnið er í samvinnu landshlutasamtaka en þau veita stuðning við atvinnu og nýsköpun á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar: info@startuplandid.is www.startuplandid.is

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
13. október 2026
Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl., samþykkti ályktun þar sem hækkun kílómetragjalds á ökutæki og hækkun eldsneytisskatta er mótmælt. Að mati þingsins leggjast breytingarnar þyngra á íbúa landsbyggðarinnar en íbúa þéttbýlis. Þingið krefst þess að fjármála- og efnahagsráðuneytið dragi hækkun kílómetragjaldsins til baka og falli frá frekari hækkun eldsneytisskatta. Einkabíllinn er eina raunhæfa samgöngutækið Í ályktuninni er bent á að kílómetragjaldið sé lagt jafnt á alla bíleigendur óháð búsetu. Fjarlægðir til vinnu, skóla og grunnþjónustu eru hins vegar margfalt meiri í dreifbýli en í þéttbýli. Valkostir í almenningssamgöngum á svæðinu eru takmarkaðir eða engir. Fyrir stóran hluta íbúa er einkabíllinn því eina raunhæfa samgöngutækið og þeir eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir gjaldahækkunum af þessu tagi. Auknar álögur á meðan vegir eru í óviðunandi ástandi Haustþingið telur sérstaklega óásættanlegt að auka álögur á akstur á meðan margir vegir á Norðurlandi vestra eru í óviðunandi ástandi og viðhaldi þeirra er ábótavant. Íbúar aka þessa vegi daglega og bera þann kostnað og þá áhættu sem slæmu ástandi þeirra fylgir. Þingið krefst þess að tekjur af gjaldtöku á umferð skili sér í tryggu fjármagni til viðhalds, vetrarþjónustu og aukins umferðaröryggis á svæðinu. Kolefnisgjald hækkar þótt önnur gjöld falli niður Um síðustu áramót voru vörugjöld og olíugjald á eldsneyti felld niður. Á sama tíma hækkar kolefnisgjald um 25% umfram almenna verðlagsþróun, og heildaráhrifin eru því hækkun á eldsneytiskostnaði. Í ályktuninni er jafnframt bent á hættu á að ávinningur af niðurfellingu eldri gjalda skili sér ekki að fullu til neytenda, þar sem eftirlit með því að olíufélög lækki verð til samræmis sé af skornum skammti. Að mati þingsins eiga báðar breytingarnar það sameiginlegt að vera flöt gjaldtaka sem tekur ekkert tillit til búsetu. Því lenda þær margfalt þyngra á íbúum Norðurlands vestra, sem þurfa að aka lengri vegalengdir vegna dreifðrar búsetu og takmarkaðrar grunnþjónustu í heimabyggð. Í ályktuninni segir að búsetufrelsi á landsbyggðinni megi ekki skerðast vegna skattlagningar sem tekur ekki tillit til aðstæðna. Kröfur haustþingsins Haustþing SSNV krefst þess: að fjármála- og efnahagsráðuneytið dragi til baka hækkun kílómetragjalds og falli frá frekari hækkun eldsneytisskatta, að framvegis verði tekið mið af sérstöðu dreifbýlis við ákvarðanir um skattlagningu aksturs og eldsneytis, þar sem akstur er nauðsyn til að sækja vinnu, skóla og heilbrigðisþjónustu, að álestur og innheimta kílómetragjalds verði áreiðanleg, að virkt eftirlit verði haft með því að afnám annarra eldsneytisgjalda skili sér að fullu til neytenda. Ályktuninni beint til ráðuneyta og Alþingis Ályktuninni er beint til fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem fer með stefnumótun í skattamálum og ber ábyrgð á kílómetragjaldi, eldsneytisgjöldum og kolefnisgjaldi. Hún hefur einnig verið send fjárlaganefnd Alþingis og innviðaráðuneytinu, enda varða ákvarðanir um gjaldtöku á umferð beinlínis samgönguöryggi, viðhald vegakerfisins og búsetuskilyrði á Norðurlandi vestra. Ályktunina í heild má lesa hér.




