Störf í boði

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
2. október 2026
Laus er til umsóknar staða þjónustufulltrúa við embættið á aðalskrifstofunni á Blönduósi. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. desember n.k. eða sem næst því. Ráðning er ótímabundin með 6 mánaða reynslutíma. Starf þjónustufulltrúa felst í fjölbreyttum verkefnum sem snúa m.a. að innheimtu sekta, sakarkostnaðar, meðlags og annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins, ásamt því að veita faglega leiðbeiningu og upplýsingar í síma og tölvupósti. Helstu verkefni og ábyrgð Samskipti við viðskiptavini og hagsmunaaðila, m.a. í síma og tölvupósti Greining og úrvinnsla erinda viðskiptavina Úthringingar Vanskilainnheimta Gerð greiðsluáætlana Önnur tilfallandi verkefni sem sinnt er hjá embættinu. Hæfniskröfur Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti Reynsla af innheimtustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir ríkri samstarfs- og skipulagshæfni, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum og getu til að vinna undir álagi. Einnig er krafa um að umsækjendur sýni frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og metnað í starfi og hafi hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum. Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu í fyrri störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Umsókn um starfið skal skila rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins og skulu fylgja: Starfsferilskrá. Upplýsingar um meðmælendur. Stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda í starfið. Afrit af prófskírteinum ef við á. Þar sem verkefni embættisins tengjast náið störfum lögreglu er gert ráð fyrir að umsækjendur veiti embættinu, með skýrum hætti í umsókn sinni, heimild til uppflettingar í málaskrárkerfi lögreglu, LÖKE. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar. Við mat á umsóknum verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvar og embættisins í heild. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þann 1. janúar 2027 tekur nýtt sameinað sýslumannsembætti til starfa. Starfsfólk núverandi embætta verður starfsfólk hjá hinu nýja embætti. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026 Sótt um hér Nánari upplýsingar veitir Erna Björg Jónmundsdóttir deildarstjóri Tölvupóstur: erna.bjorg.jonmundsdottir@syslumenn.is Sími: 458-2521

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
2. október 2026
Farskólinn leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að takast á við lifandi og fjölbreytt starf verkefnastjóra í símenntun. Leitað er að aðila sem er sjálfstæður í vinnubrögðum, þorir að fara út fyrir kassann og hefur getu til að halda mörgum boltum á lofti samtímis í hröðu og skemmtilegu umhverfi. Náin og þétt teymisvinna starfsfólks er ríkjandi í verkefnum Farskólans. Um er að 100% starf en vinnutími getur verið umsemjanlegur. Starfsstöð er á Sauðárkróki en viðkomandi mun vera á ferðinni um starfssvæði Farskólans á Norðurlandi vestra. Helstu verkefni og ábyrgð Verkefnastaðan er fjölbreytt og mun að einhverju leyti mótast af þörfum Farskólans og styrkleikum þess sem ráðinn er. Helstu verkefni munu spanna eftirfarandi svið: Umsjón, skipulag og utanumhald með íslenskukennslu fyrir fólk af erlendum uppruna. Skipulag og stýring á fjölbreyttum námsleiðum og námskeiðahaldi. Framkvæmd og umsjón með raunfærnimati og tengdri ráðgjöf. Uppbygging og þróun samstarfs við fyrirtæki og stofnanir. Greining fræðsluþarfa fyrirtækja og þróun lausna í samræmi við þær. Viðhalda og efla tengsl við aðrar símenntunarmiðstöðvar, starfsmenntasjóði og aðra hagsmunaaðila. Aðstoða við umsjón með heimasíðu, skráningakerfi og samfélagsmiðlum, ásamt uppfærslu á efni og samskiptum við notendur. Leita eftir samstarfi og fjármögnun fyrir verkefni, m.a. í gegnum innlenda og erlenda sjóði. Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Reynsla af verkefnastjórnun og/eða fræðslumálum er kostur. Almenn og góð tæknikunnátta og tæknilæsi, þekking á námskerfum er kostur. Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt lausnamiðaðri nálgun. Framúrskarandi þjónustulund og hæfni til samstarfs og samskipta. Sterk skipulagshæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni samtíms, halda yfirsýn og forgangsraða. Reynsla og þekking á atvinnulífi svæðisins er kostur. Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti ásamt góðri enskukunnáttu. Við bjóðum Fjölbreytt og skemmtilegt starf í öflugu teymi. Sveigjanlegt, skapandi starfsumhverfi og tækifæri til að hafa áhrif. Mikil tækifæri til símenntunar og persónulegs vaxtar. Hlýlegt starfsumhverfi, sveigjanleiki, liðsheild og stuðningur. Metnaðarfullt Evrópusamstarf og ferðalög tengd því. Umsóknarfrestur er til og með 14. október 2026 . Sótt er um starfið á www.mognum.is Nánari upplýsingar veita Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is og Sigríður Ólafsdóttir sigga@mognum.is Með umsókn skal ylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra var stofnaður árið 1992. Skólinn er sjálfseignarstofnun sem sinnir verkefnum á svið fullorðins- og framhaldsfræðslu á Norðurlandi vestra. Hjá Farskólanum starfa að jafnaði fjórir starfsmenn auk verktaka. Skrifstofa Farskólans er staðsett við Faxatorg á Sauðárkróki.

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
2. október 2026
Kjörbúðin Blönduósi leitar umsjónarmanni bakarís, en um er að ræða 50% starf, vinnutími frá 8:00-12:00. Starfið krefst þess að starfsmaður vinni sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og geti auk þess forgangsraðað verkefnum. Kjörbúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum. Helstu verkefni og ábyrgð Umsjón með bakaríi - bakstur Utanumhald um gæði bakarís Áfyllingar á vörum Pantanir á vörum Þjónusta við viðskiptavini Almenn verslunarstörf Menntunar- og hæfniskröfur Sjálfstæði Snyrtimennska Rík þjónustulund Skipulögð vinnubrögð Reynsla af verslunarstörfum er kostur Íslenskukunnátta skilyrði Fríðindi í starfi - Heilsustyrkur - Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa - Velferðaþjónusta til starfsmanna Sótt um hér Frekari upplýsingar veitir Hrefna Björg Ásmundsdóttir verslunarstjóri, hrefna.asmundsdottir@kjorbudin.is Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu. Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum. Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
2. október 2026
Okkur vantar einstakling með reynslu úr eldhúsi til að ganga til liðs við teymið okkar sirka 5 - 10 október / We need somebody with experience in kitchen work to join our team around 5-10th of oktober Við leitum að einstakling sem hefur áhuga á að vera með okkur í einhvern tíma, vaxa í starfi og verða partur af kjarnahópnum hjá okkur/ We are looking for an individual who would like to stay with us for some time and become a valuable member of the team Við lokum staðnum í 6 vikur frá 15 des - 30 jan. Á þessum tíma á starfsfólk mögulega rétt á atvinuleysisbótum og má búa í starfsmannahúsunum / We close down for 6 weeks from desember 15th - January 30th. During this period you migth have a right for unemployment benefits, if you have been working in Iceland for over 3 months, and you can live in the staff house. Við erum með nákvæmar starfslýsingar og upplýsingaskjöl sem við sendum á þá sem hafa áhuga að vita meira :) / We have accurate job descriptions and information documents that we send to those who are interested in knowing more :) Helstu verkefni og ábyrgð Elda mat eftir pöntunum, undirbúa hráefni ásamt almennri eldhúsvinnu. Það eru alltaf þrif sem fylgja svona vinnu og enginn er yfir uppvaskið hafinn Job description: Cooking, prepping and general kitchen work. There is always cleaning and dishwashing involved Menntunar- og hæfniskröfur 5+ ára reynsla í eldhúsi / 5+ years experience in kitchen work Ástríða fyrir eldamennsku og auga fyrir smáatriðum / A passion for cooking and an eye for details Það er nauðsynlegt að vera með bílpróf til að búa hérna / A driving license is necessary to live here Fríðindi í starfi Við getum skaffað húsnæði í starfsmannahúsum fyrir sanngjarna leigu. Starfsmannabíll er á staðnum fyrir þá sem hafa ekki eigin bíl og greitt er mánaðargjald fyrir afnot af honum We can provide a room in our staff houses for fair rent.We have a car we provide the staff for a low monthly fee The shifs are a 2-2-3 shift system. We have a clock in system and an accountant who handles the salary and pay-slips. You will get access to the clock in system and your payslip to your online bank. 2 cooks on each shift for the low season. 4 cooks on each shift for the high season. All in all we are a team of aprox 16-18 people for the high season and a team of 8 people for the low season You answer to the restaurant managers and Sous Chef We're happy to answer all questions you might have :) Sótt um hér / apply here

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
2. október 2026
Laus er til umsóknar 100% staða konu sem sundlaugarvörður við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Um er að ræða starf sem unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaplani. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Helstu verkefni og ábyrgð · Öryggisgæsla · Baðvarsla í klefum · Afgreiðsla og þjónusta við gesti · Þrif Menntunar- og hæfniskröfur · Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum. · Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna. · Reglusemi. · Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi. · Sjálfstæð vinnubrögð. · Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. · Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg. Sótt um hér Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda. Nánari upplýsingar gefur Katrín Benediktsdóttir í síma 455-4700 og í tölvupósti á netfangið katrin@hunabyggd.is .

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
2. október 2026
Í Húnavatnsprestakalli er helgihald allt árið og þar eru þrír prestar starfandi. Sóknarprestur með starfsstöð á Hvammstanga, prestur með starfsstöð á Blönduósi og prestur með starfsstöð á Skagaströnd. Organisti við Hvammstangakirkju starfar með sóknarpresti á Hvammstanga vegna helgihalds í Húnaþingi vestra. Organistastarfið felst annars vegar í kórstjórn; að undirbúa kóræfingar, þjálfa kirkjukór vikulega yfir vetratímann og stýra kirkjukór í helgihaldi og hins vegar orgelleikur við helgihald í kirkjum í Húnaþingi vestra, þó fyrst og fremst Hvammstangakirkju. Undirbúningur fyrir messur fer fram í samstarfi við sóknarprest, sem skipuleggur helgihald og safnaðarstarf, en ráðningarsamband er við sóknarnefnd Hvammstangakirkju. Helstu verkefni og ábyrgð Orgelleikur og kórstjórn á kóræfingum og við helgihald í Hvammstangakirkju, í öðrum kirkjum héraðsins og í kapellu HVE Hvammstanga. Önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfskyldna og starfshlutfalls. Menntunar- og hæfniskröfur Kostur að umsækjandi hafi lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegu prófi í kirkjutónlist. Umsækjandi hafi reynslu af tónlistarflutningi við helgihald og kórstjórn. Umsækjandi hafi gaman af fjölbreyttu helgihaldi, sé hugmyndaríkur og vilji viðhalda og efla tónlistarstarf í söfnuðinum. Umsækjandi hafi færni í samskiptum, getu til að vinna í hóp og hæfni til að starfa sjálfstætt. Sótt um hér

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
21. september 2026
Leitað er að áhugasömum og vandvirkum aðalbókara til starfa fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd. Á skrifstofunni starfa þrír starfsmenn að sveitarstjóra meðtöldum og er um að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf. Um er að ræða 100% stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir
•
18. september 2026
Pósturinn á Blönduósi leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum einstaklingi í starf bílstjóra. Viðkomandi sér um afhendingu pakka og dreifingu bréfa á Blönduósi og Skagaströnd ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Unnið er útfrá Blönduósi og vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-14:22. Menntunar- og hæfniskröfur Bílpróf er skilyrði Íslenskukunnátta er skilyrði Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun Rík þjónustulund og góð samskiptafærni Sterk ábyrgðartilfinning Almenn tölvukunnátta Sótt er um hér . Öllum umsóknum er svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 25. september og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Erla Ísafold Sigurðardóttir rekstrarstjóri, í tölvupósti - erlasi@postur.is. Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.