2. október 2026

Verkefnastjóri

Farskólinn leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að takast á við lifandi og fjölbreytt starf verkefnastjóra í símenntun.

Leitað er að aðila sem er sjálfstæður í vinnubrögðum, þorir að fara út fyrir kassann og hefur getu til að halda mörgum boltum á lofti samtímis í hröðu og skemmtilegu umhverfi.

Náin og þétt teymisvinna starfsfólks er ríkjandi í verkefnum Farskólans. Um er að 100% starf en vinnutími getur verið umsemjanlegur.

Starfsstöð er á Sauðárkróki en viðkomandi mun vera á ferðinni um starfssvæði Farskólans á Norðurlandi vestra.


Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastaðan er fjölbreytt og mun að einhverju leyti mótast af þörfum Farskólans og styrkleikum þess sem ráðinn er. 

Helstu verkefni munu spanna eftirfarandi svið:

  • Umsjón, skipulag og utanumhald með íslenskukennslu fyrir fólk af erlendum uppruna.
  • Skipulag og stýring á fjölbreyttum námsleiðum og námskeiðahaldi.
  • Framkvæmd og umsjón með raunfærnimati og tengdri ráðgjöf.
  • Uppbygging og þróun samstarfs við fyrirtæki og stofnanir.
  • Greining fræðsluþarfa fyrirtækja og þróun lausna í samræmi við þær.
  • Viðhalda og efla tengsl við aðrar símenntunarmiðstöðvar, starfsmenntasjóði og aðra hagsmunaaðila.
  • Aðstoða við umsjón með heimasíðu, skráningakerfi og samfélagsmiðlum, ásamt uppfærslu á efni og samskiptum við notendur.
  • Leita eftir samstarfi og fjármögnun fyrir verkefni, m.a. í gegnum innlenda og erlenda sjóði.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða fræðslumálum er kostur.
  • Almenn og góð tæknikunnátta og tæknilæsi, þekking á námskerfum er kostur.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt lausnamiðaðri nálgun.
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni til samstarfs og samskipta.
  • Sterk skipulagshæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni samtíms, halda yfirsýn og forgangsraða.
  • Reynsla og þekking á atvinnulífi svæðisins er kostur.
  • Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti ásamt góðri enskukunnáttu.


Við bjóðum

  • Fjölbreytt og skemmtilegt starf í öflugu teymi.
  • Sveigjanlegt, skapandi starfsumhverfi og tækifæri til að hafa áhrif.
  • Mikil tækifæri til símenntunar og persónulegs vaxtar.
  • Hlýlegt starfsumhverfi, sveigjanleiki, liðsheild og stuðningur.
  • Metnaðarfullt Evrópusamstarf og ferðalög tengd því.



Umsóknarfrestur er til og með 14. október 2026. 

Sótt er um starfið á www.mognum.is


Nánari upplýsingar veita Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is og Sigríður Ólafsdóttir sigga@mognum.is


Með umsókn skal ylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. 


Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra var stofnaður árið 1992. Skólinn er sjálfseignarstofnun sem sinnir verkefnum á svið fullorðins- og framhaldsfræðslu á Norðurlandi vestra. Hjá Farskólanum starfa að jafnaði fjórir starfsmenn auk verktaka. Skrifstofa Farskólans er staðsett við Faxatorg á Sauðárkróki.